Lögregla hefur lagt hald á hníf sem hún telur að hafi verið beitt í árás í Breiðholti í nótt. Einn lést af áverkum sínum eftir árásina og annar er á gjörgæslu. Þrír voru handteknir og eru í haldi lögreglu. Reikna má með að farið verði fram á gæsluvarðhald yfir einhverjum þeirra fyrir héraðsdómi í kvöld.
Lögreglu var tilkynnt um líkamsárás laust fyrir klukkan tvö í nótt. Þegar hún kom á vettvang á móts við Austurberg og Hraunberg í Breiðholti voru þar tveir karlmenn með alvarlega áverka. Þeir voru fluttir á bráðamóttöku þar sem annar þeirra var úrskurðaður látinn. Hinn er á gjörgæsludeild og er ástand hans stöðugt sagði lögregla í tilkynningu fyrir hádegi.
Þrír karlar, tveir þeirra feðgar, voru skömmu síðar handteknir annars staðar í hverfinu og eru í haldi. Þeir eru íslenskir og einnig þeir tveir sem urðu fyrir árásinni.
Til átaka mun hafa komið utandyra á milli hins látna og þess sem liggur á Landspítalanum annars vegar og tveggja þeirra sem eru í haldi. Annar þeirra, sem er á fertugsaldri, beitti hnífi og eru stungusár talin hafa átt þátt í því að maðurinn lést. Hann og tæplega sextugur faðir hans, sem einnig er í haldi, eru báðir með áverka.
Hnífurinn var ekki á vettvangi en þeir sem eru í haldi vísuðu lögreglu á hann í fjölbýlishúsi ekki langt frá, þar sem einn þeirra á heima. Þangað fór lögreglan eftir hádegi og lagði hald á hnífinn.
Víðtæk rannsókn stendur yfir. Síðdegis athuguðu lögreglumenn hvort eftirlitsmyndavélar gætu hafa náð upptökum af átökunum.
Íbúum er skiljanlega brugðið. Margir höfðu lagt kerti við gatnamót Austurbergs og Hraunbergs í dag.