Notkun ólöglegra peptíða hefur færst í aukana síðustu misseri. Sérfræðingar segja ómögulegt að vita hvað er í efnunum sem seld eru á svörtum mörkuðum á samfélagsmiðlum.
Innkirtlasérfræðingur sagði í fréttum okkar á föstudag að ólöglegu efnin gætu valdið krabbameinum, nýrna- og/eða lifrarbilun, hjartasjúkdómum og valdið ofnæmi og sýkingum. Seljendur fullyrða að efnin stuðli að þyngdartapi og bættri frammistöðu í íþróttum til dæmis.
Vinna að fræðslu fyrir ungmenni
„Við höfum miklar áhyggjur af sérstaklega ungra íþróttaiðkenda inn í þetta og áhuga þeirra. Í framhaldi af því höfum við verið að undirbúa fræðsluefni og forvarnarefni sem er hugsað fyrir bæði framhaldsskóla og grunnskóla landsins,“ segir Skúli Skúlason, lyfjafræðingur og stjórnarformaður Lyfjaeftirlits Íslands.
Auk fræðsluefnis lyfjaeftirlitsins er heilbrigðisráðuneytið að vinna að reglugerð sem bannar sölu efnanna.
„Það var stöðvaður umfangsmikill innflutningur í vor, það voru óhrein efni og gölluð. Það getur verið að innihaldsefnin séu allt önnur en fólk heldur. Við gjöldum auðvitað varhug við notkun þessara efna,“ segir Alma Möller, heilbrigðisráðherra.
Dæmi um 15 ára að auglýsa efnin
„Það sem við höfum heyrt og orðið áskynja er að einstaklingar alveg niður í 15 ára aldur sem hafa verið að auglýsa efnin, jafnvel sýna þeim mikinn áhuga á TikTok og öðrum samfélagsmiðlum,“ segir Skúli.
Fræðsluefnið sem Lyfjaeftirlitið undirbýr er um lyfjamisnotkun, líkamsímynd og samfélagsmiðla.
Þar kemur fram að peptíð séu markaðssett sem skyndilausnir, minni fita, meiri vöðvar og hraðari bati. En efnin séu ekki öll örugg eða lögleg, mörg lítið rannsökuð og sum bönnuð í íþróttum.
„Það er komið fall hjá okkur á Íslandi, íþróttamaður sem féll á notkun á peptíðum. Og þá kvikna viðvörunarbjöllurnar,“ segir hann jafnframt.
Allt að 140% sprautusöluaukning
Skúli rekur Íslandsapótek og segir að notkunin sé hjá öllum aldurshópum – það sjáist á aukningu í sprautusölu.
„Hjá okkur hefur þessi insúlínsprautusala aukist um 120-140% á síðasta árinu sem er ekki skýrt af annarri notkun heldur en þessu,“ bætir hann við.
Skúli segir fræðslu og forvarnir fyrsta skrefið í að ná til yngstu og viðkvæmustu aldurshópanna.
„Svo þarf bara almenna fræðslu fyrir fullorðna en ég held að við eigum miklu erfiðara með að stoppa þá notkun, hún er meira komin til að vera. Meðan framboðið er þá munu þau nota það.“