Er næsti James Bond fundinn? Þessu velta margir fyrir sér eftir að þau tíðindi bárust að leikarinn Callum Turner hefði sagt af sér sem forstjóri kvikmyndaframleiðslunnar TwentytwoFilms Ltd. sem hann stofnaði með eiginkonu sinni, tónlistarkonunni Dua Lipa.Fyrirtækið var stofnað í ágúst og þykir mörgum ólíklegt að Turner myndi stíga til hliðar nema hafa fyrir því góða ástæðu á borð við að hann sé að fara að taka að sér hlutverk eins þekktasta njósnara bókmennta- og kvikmyndasögunnar, sjálfs 007.
Útspil leikara þykir benda til þess að næsti James Bond sé fundinn