Romulusz Ruszin-Szendis, varnarmálaráðherra Ungverjalands, sagði að áhöfn flugvélarinnar hefði óskað eftir leyfi til þess að nauðlenda á flugvellinum í kjölfar hótunarinnar. Innan fárra mínútna hafði orrustuþota ungverska hersins farið á loft og fylgt vélinni á Liszt Ferenc-alþjóðaflugvöllinn í Búdapest.
Wizz Air staðfesti seinna að öryggiseftirlit hefði verið framkvæmt á flugvellinum, bæði á vélinni sjálfri og farþegum. Ekkert grunsamlegt hefði fundist við eftirlitið og hélt leið sinni áfram að því loknu.
„Wizz Air er í fullu samstarfi við yfirvöld. Öryggi farþega og áhafnar er áfram okkar fremsta forgangsatriði,“ sagði í yfirlýsingu frá flugfélaginu.