Breskur ævintýramaður, Karl Bushby, lauk í dag göngu í kringum jörðina sem stóð í 28 ár. Hann ætlaði sér mun styttri tíma en covid og rússneskar reglur um vegabréfsáritun töfðu hann.
Bushby lagði af stað frá syðsta odda Chile í byrjun nóvember 1998. Á leiðinni hefur hann meðal annars lent í fangelsi í tveimur löndum, lent tvisvar í sjávarháska og þurft að bíða í tíu ár eftir vegabréfsáritun gegnum sama landið. Nú þegar göngunni er lokið stendur upp úr að alls staðar, í öllum menningarsamfélögum, hafi hann hitt gott fólk.