Ís­lensk lista­kona sló í gegn í Miami - Vísir

Ís­lensk lista­kona sló í gegn í Miami - Vísir

Ís­lensk lista­kona sló í gegn í Miami - Vísir

Sandra er 33 ára gömul og var 21 árs þegar hún lagði land undir fót og fluttist fyrst til hinnar sólríku Los Angeles. Nú býr hún í New York og nýtur fjölbreytileika borgarinnar í botn. Blaðamaður ræddi við hana um lífið úti og listina.

Sandra vinnur bæði í myndlist og ritlist.Aðsend

Hvað varð til þess að þú fluttir út og hvar býrðu?

Ég flutti upphaflega til Los Angeles fyrir tæpum tólf árum til að læra ritlist og frjálsar listir. Ég bý nú í East Village á Manhattan í New York, þar sem ég hef búið síðastliðin átta ár.

Sandra hefur búið í New York síðastliðin átta ár og dagarnir eru fjölbreyttir hjá henni.Aðsend

Hvað ertu að gera þar?

Ég starfa sem listakona og rithöfundur og hef verið að skapa, skrifa og vinna að ýmsum spennandi verkefnum hér. Myndlistin hefur verið stór hluti af starfi mínu undanfarin ár og hef ég meðal annars tekið þátt í fjölda listasýninga bæði hér í Bandaríkjunum og annars staðar erlendis.

Ég vinn aðallega með pappír og bý til þrívíð verk úr mörgum lögum af pappír sem ég móta og raða saman á viðarplötur. Í verkunum leik ég mér með áferð, ljós og skugga og hvernig ólík lög og form skapa ákveðna dýpt og sjónræn áhrif. 

Verkin mín tengjast tilfinningum, minningum og þeirri reynslu sem mótar okkur sem einstaklinga. Mér finnst sérstaklega áhugavert hvernig eitthvað sem kann að virðast ófullkomið eða jafnvel óreglulegt getur orðið að einhverju fallegu.

Listaverk Söndru tengjast tilfinningum, minningum og þeirri reynslu sem mótar okkur sem einstaklinga.Aðsend

Hvernig er daglegt líf og hversdagsleikinn úti hjá þér?

Þar sem ég er sjálfstætt starfandi eru dagarnir nokkuð fjölbreyttir og fara mikið eftir því hvaða verkefnum ég er að vinna að hverju sinni. Sumir dagar fara í að vinna að listaverkunum mínum, og aðrir fara í skipulagningu sýninga, samskipti við gallerí og undirbúning fyrir komandi verkefni. 

Svo eru auðvitað dagar þar sem ég sit við tölvuna og vinn að ritlistinni. Eitt af því skemmtilega við að starfa sjálfstætt er að fæstir dagar eru alveg eins.

Sandra á sólríkum degi í Los Angeles. Engir dagar eru eins hjá henni úti, hún hefur búið bæði á Vestur- og Austurströndinni og ferðast víða fyrir sýningar.Aðsend

Hvað er skemmtilegast við lífið úti?

Það er fyrst og fremst fjölbreytileikinn, frelsið og tækifærin. Það er ótrúlega dýrmætt að búa í borg þar sem alltaf er eitthvað að gerast og maður hefur endalausa möguleika á að prófa nýja hluti. Sérstaklega þegar maður starfar í skapandi geira. 

Hér er alltaf eitthvað í gangi í lista- og menningarlífinu og það er mjög hvetjandi að vera í umhverfi þar sem maður hittir stöðugt fólk sem er að skapa og vinna að svipuðum verkefnum.

Fjölbreytileikinn, frelsið og tækifærin standa upp úr við lífið úti.Aðsend

En mest krefjandi?

Ætli það sé ekki bara að lifa borgina af og ná að standa á eigin fótum, sérstaklega þegar maður hefur lítið bakland hér vegna þess hversu langt maður er frá fjölskyldu og vinum heima á Íslandi.

Sandra þurfti að læra vel inn á borgina og standa með sjálfri sér en elskar lífið úti.Aðsend

Hvað stendur upp úr frá lífinu úti hingað til?

Það er klárlega að taka þátt í hinum ýmsu listasýningum undanfarin ár og þau tækifæri sem hafa skapast í kjölfarið. Eitt af því sem stendur sérstaklega upp úr var þegar ég tók þátt í Red Dot Miami í desember á síðasta ári sem er hluti af Miami Art Week.

Það var ótrúleg upplifun að fá tækifæri til að sýna verkin mín í borg sem iðar af lífi og list þessa daga. Miami Art Week er ein stærsta listavika ársins og það er sérstök tilfinning að fá að vera hluti af henni. Á þessum tíma breytist eiginlega öll borgin í einn stóran vettvang fyrir list og menningu.

Það var ógleymanlegt fyrir Söndru að sýna í Miami.Aðsend

Hvaða hverfi er í uppáhaldi og af hverju?

Greenpoint í Brooklyn hefur nýlega komist á toppinn hjá mér. Hluti hverfisins hefur svolítið iðnaðarlegt yfirbragð, sem mér finnst mjög heillandi. Þar er líka mun rólegra en á Manhattan, sem getur verið yfirþyrmandi á köflum. 

Það er líka fullt af frábærum kaffihúsum, veitingastöðum og litlum verslunum hérna, og það skemmir ekki fyrir að hverfið er við vatnið með fallegu útsýni yfir borgina.

Fallegt umhverfi í Greenpoint.Aðsend

Uppáhalds kaffihús og veitingastaður úti?

Undanfarið hef ég farið aðeins of oft á Eagle Trading Company í Greenpoint. Ég sit þar í þessum skriflegu með einn frábæran kaffibolla. Ef ég á að vera hreinskilin þá á ég engan einn uppáhaldsveitingastað. 

Ég hef frekar gaman af því að prófa eitthvað nýtt, enda eru möguleikarnir hér endalausir. Bubby’s er þó alltaf góður kostur fyrir brunch og ef ég sting upp á stað er það yfirleitt sá.

Hvernig er draumadagur fyrir þig úti?

Draumadagurinn myndi byrja á góðum kaffibolla og rölti í fallegu veðri. Góður brunch með vinum kæmi þar á eftir, kannski heimsókn á listasafn eða eitthvert annað menningarlegt, og svo smá tími fyrir mína eigin sköpun. Góður matur og óslitinn svefn í lok dags myndi svo toppa þetta allt saman.

Sandra elskar góðan bolla í borginni.Aðsend

Hefurðu fundið fyrir heimþrá?

Það kemur auðvitað fyrir. En eftir öll þessi ár erlendis er lífið langt frá heiman orðið svo eðlilegur hluti af hversdeginum að ég hugsa ekki alltaf út í það. Ég þekki eiginlega ekkert annað en að búa langt frá fólkinu mínu heima á Íslandi.

Hvað hefur komið þér mest á óvart við lífið úti?

Það fyrsta sem mér dettur í hug er hvað maður venst ótrúlega miklu. New York er svo fjölbreytt borg og maður verður vitni að svo mörgu á hverjum degi sem manni hefði kannski þótt mjög skrítið eða óvenjulegt áður fyrr. Eftir að hafa búið hér í svona mörg ár er maður hættur þó að kippa sér upp við margt sem öðrum þætti kannski ansi sérstakt. Það er bara orðið hluti af daglegu lífi.

Hvað er fram undan?

Ég er meðal annars að vinna að nýjum verkefnum með galleríi í Brooklyn þar sem verk eftir mig verða til sýnis. Ég er einnig að undirbúa önnur spennandi verkefni tengd listsköpuninni sem ég vonast til að geti litið dagsins ljós í byrjun næsta árs. Það verður því nóg um að vera á næstunni.

#gegn #listakona #miami #sló #íslensk

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262957050d/is-lensk-lista-kona-slo-i-gegn-i-miami

📰 Aðrar fréttir

Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 1
Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum - Vísir
Bandaríkjamenn hafa um nokkurt skeið gagnrýnt Evrópu harðlega á þeim grunni að nokkur ríki heimsálfunnar hættu ekki að kaupa jarðgas af Rússum eftir i...
Eyddi mánuði á sjúkrahúsi eftir að hún keypti retatrútíð á svörtum markaði
📅 02.11.2026 👁️ 1
Eyddi mánuði á sjúkrahúsi eftir að hún keypti retatrútíð á svörtum markaði
Ástralinn Megan Hancocks vildi losna við nokkur aukakíló og eftir að hafa heyrt góða hluti um peptíðið retatrútíð, eða reta eins og það er gjarnan kal...
Frönsk mannæta upplýsir um hvernig mannakjöt bragðast – „Fólk spyr mig alltaf um bragðið“
📅 02.11.2026 👁️ 1
Frönsk mannæta upplýsir um hvernig mannakjöt bragðast – „Fólk spyr mig alltaf um bragðið“
Nico Claux, dæmdur morðingi og mannæta, segist hafa dreymt um að borða mannakjöt frá unga aldri. Í nýju hlaðvarpi upplýsir hann hvernig mannakjöt smak...
„Ef þetta fólk hefur business vit þá heldur það í góða kjarnann“
📅 02.11.2026 👁️ 1
„Ef þetta fólk hefur business vit þá heldur það í góða kjarnann“
Fjarðarkaup hafa verið í eigu sömu fjölskyldunnar í meira en hálfa öld. Nú hefur fjölskyldan samþykkt að selja verslunina Samkaupum en það er þó háð þ...
Erfitt fyrir Demókrata að ná málum í gegn þótt þeir vinni kosningar
📅 02.11.2026 👁️ 1
Erfitt fyrir Demókrata að ná málum í gegn þótt þeir vinni kosningar
Þó að Demókratar vinni þingkosningarnar í Bandaríkjunum verður ekki auðvelt fyrir þá að ná málum í gegn í þinginu án málamiðlana, segir Svanhildur Þor...
Nauðlenti vegna sprengju­hótunar - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 2
Nauðlenti vegna sprengju­hótunar - Vísir
Romulusz Ruszin-Szendis, varnarmálaráðherra Ungverjalands, sagði að áhöfn flugvélarinnar hefði óskað eftir leyfi til þess að nauðlenda á flugvellinum ...
Benjamín greindist með sjaldgæfa tegund hvítblæðis aðeins 9 vikna gamall
📅 02.11.2026 👁️ 1
Benjamín greindist með sjaldgæfa tegund hvítblæðis aðeins 9 vikna gamall
Í hlaðvarpinu 4. vaktin, sem þær Lóa Sigríður Ólafsdóttir og Sara Rós Kristinsdóttir stýra er rætt um ýmis málefni sem tengjast fötluðum og langveikum...
„Þá segir Sigurvin við mig: „Veistu ástin mín ég er bara orðinn sáttur. Ég er bara orðinn sáttur að þetta er farið að styttast““
📅 02.11.2026 👁️ 1
„Þá segir Sigurvin við mig: „Veistu ástin mín ég er bara orðinn sáttur. Ég er bara orðinn sáttur að þetta er farið að styttast““
„Einn morguninn ekki fyrir svo löngu, þá segir Sigurvin við mig: „Veistu ástin mín ég er bara orðinn sáttur. Ég er bara orðinn sáttur að þetta er fari...
Vill jafnari stöðu barna sem búa við fátækt:„Það þarf aðgerðir strax“
📅 02.11.2026 👁️ 1
Vill jafnari stöðu barna sem búa við fátækt:„Það þarf aðgerðir strax“
Varaformaður Samtaka gegn fátækt á Íslandi kallar eftir skjótum aðgerðum stjórnvalda þegar kemur að fátækt barna. Hún segir margt gott í nýrri aðgerða...
Játar að hafa logið til um nauðgun - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 2
Játar að hafa logið til um nauðgun - Vísir
Aðalmeðferð yfir Írisi Helgu hófst í morgun og er hún sökuð um umsáturseinelti gagnvart þremur mönnum, börnum tveggja þeirra, sambýliskonu einnar þeir...
Tæplega þriggja ára­tuga löng göngu­ferð á enda - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 1
Tæplega þriggja ára­tuga löng göngu­ferð á enda - Vísir
Bushby lagði af stað í ferðalagið 1998, þá 29 ára gamall, frá Punta Arenas í Síle heim til Englands. Hann setti sjálfum sér tvær reglur: hann mætti ek...
Trump biðlar til þjóðarinnar kvöldið fyrir kosningar
📅 02.11.2026 👁️ 2
Trump biðlar til þjóðarinnar kvöldið fyrir kosningar
Trump biðlar til þjóðarinnar kvöldið fyrir kosningar Kannanir benda til þess að demókratar nái meiri­hluta í full­trúa­deild­inni og eigi mögu­leika á...
„Tíminn er á þrotum“ - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 3
„Tíminn er á þrotum“ - Vísir
Ekki er búið að nafngreina farþega flugvélarinnar en fjölskylda hinnar tvítugu Nathalia Filgueiras hefur opinberað að hún var aðstoðarflugmaður um bor...
Lauk 28 ára göngu yfir jörðina
📅 02.11.2026 👁️ 1
Lauk 28 ára göngu yfir jörðina
Breskur ævintýramaður, Karl Bushby, lauk í dag göngu í kringum jörðina sem stóð í 28 ár. Hann ætlaði sér mun styttri tíma en covid og rússneskar reglu...
Two boys arrested after Chandler's Ford Halloween party stabbings
📅 02.11.2026 👁️ 1
Two boys arrested after Chandler's Ford Halloween party stabbings
Two teenage boys, both from Southampton, have been arrested on suspicion of attempted murder.
„Mikilvægustu kosningar á miðju kjörtímabili á okkar lífstíð“
📅 02.11.2026 👁️ 2
„Mikilvægustu kosningar á miðju kjörtímabili á okkar lífstíð“
Þingkosningarnar í Bandaríkjunum á morgun eru mikilvægustu kosningar í manna minnum, sagði Donald Trump Bandaríkjaforseti í lokaávarpi fyrir kosningar...
Hvað veistu um… eyjar við Ís­land? - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 2
Hvað veistu um… eyjar við Ís­land? - Vísir
Eyjarnar eru fjölbreyttar og þar má finna fallegt landslag, fjölbreytt fuglalíf og oft á tíðum áhugaverða sögu. En hvað veistu um eyjar við Ísland? Hv...
Hrákinn endaði í and­liti og auga - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 2
Hrákinn endaði í and­liti og auga - Vísir
„Það er alvarlegt og miður þegar sjúkraflutningamenn verða í sínum störfum fyrir svona hótunum um ofbeldi og að það endi með leiðindum og að hrækt sé ...
Björn varar við ágangi Votta Jehóva – „Gerðu hvað þeir gátu til að fá að komast inn í íbúðina! Stúlkan var ein heima“
📅 02.11.2026 👁️ 1
Björn varar við ágangi Votta Jehóva – „Gerðu hvað þeir gátu til að fá að komast inn í íbúðina! Stúlkan var ein heima“
Björn Þorláksson, fjölmiðlamaður á Samstöðinni, greinir frá óþægilegri uppákomu þegar Vottar Jehóva vildu fá að komast inn á heimili hans. Ung dóttir ...
BBC reconstructs final moments before deadly Florida plane crash
📅 02.11.2026 👁️ 2
BBC reconstructs final moments before deadly Florida plane crash
A private jet crashed in Florida on Sunday, killing all nine people on board, according to US authorities.
Sprengjum varpað skóla meðan fólk beið eftir brauði - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 1
Sprengjum varpað skóla meðan fólk beið eftir brauði - Vísir
Árásirnar voru gerðar í bænum Komyshuvakha í Sapórisjía. Fyrstu sprengjurnar féllu þegar íbúar bæjarins komu saman í skólanum, eins og þeir gera reglu...
Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði - Vísir

„Trump gæti farið að einbeita sér meira að utanríkismálum“
📅 02.11.2026 👁️ 2
„Trump gæti farið að einbeita sér meira að utanríkismálum“
Donald Trump forseti Bandaríkjanna fór á þrjá kosningafundi í gær til að vinna hylli Repúblíkana fyrir kosningarnar. Hann skaut þar föstum skotum á no...
Prosecutors hint at plans to retry Lindsay Clancy on murder charges
📅 02.11.2026 👁️ 3
Prosecutors hint at plans to retry Lindsay Clancy on murder charges
Judge William Sullivan said if the case is headed to a retrial, that could happen as soon as March 2027.
Legal challenge to Australia's social media ban to start in High Court
📅 02.11.2026 👁️ 1
Legal challenge to Australia's social media ban to start in High Court
A rights group will argue the world-leading policy robs under-16s of their right to free communication.
Óttaðist að pólitísk afskipti myndu gera Landsvirkjun óstarfhæfa
📅 02.11.2026 👁️ 2
Óttaðist að pólitísk afskipti myndu gera Landsvirkjun óstarfhæfa
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hóf að gera athugasemdir við starfshætti stjórnar og fjármálaráðuneytisins í lok síðasta árs. Hann taldi af...
Íris Helga viðurkennir að hafa logið til um nauðgun - „Hann veit ekkert hver ég er“
📅 02.11.2026 👁️ 3
Íris Helga viðurkennir að hafa logið til um nauðgun - „Hann veit ekkert hver ég er“
Íris Helga Jónatansdóttir, sem ákærð er fyrir umfangsmikið umsáturseinelti, viðurkenndi fyrir dómi í dag að hafa ranglega sakað einn þolanda málsins u...
Líkir leitinni að Lúðvík við einhvers konar sjónarspil: „Þetta voru gríðarleg vonbrigði“
📅 02.11.2026 👁️ 2
Líkir leitinni að Lúðvík við einhvers konar sjónarspil: „Þetta voru gríðarleg vonbrigði“
Bróðir manns sem féll ofan í sprungu í Grindavík í byrjun árs 2024 vill að bæjarstjórn Grindavíkur hafi forgöngu um að lík bróður hans verði grafið up...
Leitin að líki Lúðvíks „gríðarleg vonbrigði“

Breytt vinnu­brögð sköpuðu núning milli for­stjóra og stjórnar - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 2
Breytt vinnu­brögð sköpuðu núning milli for­stjóra og stjórnar - Vísir
Breytt vinnubrögð vegna nýrra reglna hafi skapað núning milli forstjóra og stjórnar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu stjórnarinnar um...
Tölvuþrjótar gerðu netárásir á kæli- og frystiskápa verslana í sjö löndum
📅 02.11.2026 👁️ 2
Tölvuþrjótar gerðu netárásir á kæli- og frystiskápa verslana í sjö löndum
Matvöruverslanir í sjö löndum í Evrópu urðu fyrir netárásum sem höfðu áhrif á kæli- og frystiskápa í dag. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásunum.Um ...
Á annað hundrað sagt upp hjá ríkinu - margir ráðnir aftur
📅 02.11.2026 👁️ 1
Á annað hundrað sagt upp hjá ríkinu - margir ráðnir aftur
Á annað hundrað var sagt upp hjá ríkisstofnunum í hópuppsögnum í október, meirihlutinn verður endurráðinn. Atvinnuleysi eykst á næstu mánuðum.Vinnumál...
Raf­magnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 3
Raf­magnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ - Vísir
„Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól. Það er ekki hægt að koma svona fram við fólk. Við borgum skatta og skyldur okkar í Reykjavík.“ Byggð þessi flu...
Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjöru­tíu þúsund krónum í þetta“ - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 3
Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjöru­tíu þúsund krónum í þetta“ - Vísir
Aðalmeðferð yfir Írisi Helgu hófst í morgun. Um er að ræða afar umfangsmikla ákæru og fer allur fyrsti dagurinn í skýrslutöku þar sem hver ákæruliður ...
Íbúar hjólhýsabyggðar upplifa að þeir megi hvergi vera
📅 02.11.2026 👁️ 3
Íbúar hjólhýsabyggðar upplifa að þeir megi hvergi vera
Búið er að loka fyrir rafmagn og vatn í hjólhýsabyggðinni á Sævarhöfða í Reykjavík. Þingmenn Flokks fólksins lögðu í dag fram tillögu um varanlega bús...
Mikil notkun Ís­lendinga á appinu ó­vænt - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 4
Mikil notkun Ís­lendinga á appinu ó­vænt - Vísir
Hann segir fyrstu skrefin hafa verið stigin á Reykjavík Pride, Menningarnótt og Ljósanótt og á RIFF þar sem dagskrár hátíðanna voru settar upp í appin...
„Við erum ekki hönnuð fyrir að festast í þægindaramma þar sem allt er auðvelt“
📅 02.11.2026 👁️ 3
„Við erum ekki hönnuð fyrir að festast í þægindaramma þar sem allt er auðvelt“
Haraldur Erlendsson geðlæknir segir okkur komin of langt í góðmennsku á Íslandi og að þrautsegja sé að þurrkast úr fólki. Haraldur, sem er nýjasti ges...
Russian bombing kills 18 people at humanitarian aid centre in Ukraine, Kyiv says
📅 02.11.2026 👁️ 2
Russian bombing kills 18 people at humanitarian aid centre in Ukraine, Kyiv says
Local officials say 27 people are missing after at least nine 3,000kg aerial bombs hit a village in southern Ukraine.
Russian bombing kills 24 people at humanitarian aid centre in Ukraine, Kyiv says
📅 02.11.2026 👁️ 1
Russian bombing kills 24 people at humanitarian aid centre in Ukraine, Kyiv says
Local officials say 27 people had been missing after at least nine 3,000kg aerial bombs hit a village in southern Ukraine.
Russian bombing kills 26 people at humanitarian aid centre in Ukraine, Kyiv says
📅 02.11.2026 👁️ 1
Russian bombing kills 26 people at humanitarian aid centre in Ukraine, Kyiv says
Local officials say more had been missing after at least nine 3,000kg aerial bombs hit a village in southern Ukraine.
Man who drugged and raped wife with strangers 'led double life'
📅 02.11.2026 👁️ 2
Man who drugged and raped wife with strangers 'led double life'
Nine men are on trial accused of helping a Stockport man fulfil "barbaric fantasies" against his wife.
'All this food is now useless': Piles of rubbish after shop freezers hit by cyber-attack
📅 02.11.2026 👁️ 2
'All this food is now useless': Piles of rubbish after shop freezers hit by cyber-attack
Dozens of supermarkets in seven European countries dumped huge quantities of food after refrigerators and freezers were targeted in a cyber-attack.
Carla Lockhart: Upper Bann MP quits DUP in Drumcree row
📅 02.11.2026 👁️ 2
Carla Lockhart: Upper Bann MP quits DUP in Drumcree row
Lockhart had called for the DUP to remove First Minister Michelle O'Neill from office.
Fighting returns to Kherson region after longest Ukraine war ceasefire
📅 02.11.2026 👁️ 4
Fighting returns to Kherson region after longest Ukraine war ceasefire
Though unprecedented, the six-day truce has done little to alter the wider trajectory of a war that continues to grinds on.
Six dental clinics shut across Tenerife, leaving patients with unfinished treatment
📅 02.11.2026 👁️ 2
Six dental clinics shut across Tenerife, leaving patients with unfinished treatment
Six Vivanta dental clinics across Tenerife have shut, leaving hundreds of patients facing uncertainty over treatment that may be unfinished or already...
Snorri Másson hjólar í Kristrúnu: „Dökk mynd, segir formaður Samfylkingarinnar“
📅 02.11.2026 👁️ 2
Snorri Másson hjólar í Kristrúnu: „Dökk mynd, segir formaður Samfylkingarinnar“
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag að í fyrirspurn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, um...
Á­bendingar borist um skemmdar­verkin - Vísir
📅 02.11.2026 👁️ 4
Á­bendingar borist um skemmdar­verkin - Vísir
Lögreglu barst snemma morguns tilkynning um skemmdarverk á ökutækjum á Seltjarnarnesi. Ýmist ein eða tvær rúður bílanna höfðu verið brotnar. Um þrjátí...
Demókratar með forskot í lykilríkjum einum degi fyrir kosningar
📅 02.11.2026 👁️ 3
Demókratar með forskot í lykilríkjum einum degi fyrir kosningar
Kosið verður til þings í Bandaríkjunum á morgun. Öll sætin í fulltrúadeildinni eru undir og um þriðjungur í öldungadeildinni. Samkvæmt nýjustu könnunu...
King's role is not policy making, says Palace in slavery apology row
📅 02.11.2026 👁️ 3
King's role is not policy making, says Palace in slavery apology row
Buckingham Palace says the King has a unifying role in the Commonwealth rather than making political decisions.
Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Bláa lónsins á Arctic Adventures
📅 02.11.2026 👁️ 3
Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Bláa lónsins á Arctic Adventures
Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Bláa lónsins hf. á Arctic Adventures hf. án skilyrða. Gert er ráð fyrir að lokið verði við kaupin á næstu vik...