„Það er alvarlegt og miður þegar sjúkraflutningamenn verða í sínum störfum fyrir svona hótunum um ofbeldi og að það endi með leiðindum og að hrækt sé á starfsmann,“ segir hann og að hrákinn hafi endað í andliti og þar með talið auga.
Birgir segir sjúkraflutningamenn hafa verið kallaða til og lögreglu sömuleiðis.
„Þetta er einstaklingur sem lögregla var að kljást við og við komum svo inn í það. Við lítum þetta alvarlegum augum en faglega eru líkur á smiti úr hráka í auga ekki miklar,“ segir hann.
Leita á slysadeild
Hann segir öll slík mál skráð sem atvik og það sé skýrt verklag þegar slökkviliðsmenn og sjúkraflutningafólk verður fyrir slíku að leita á slysadeild, fara í blóðprufu samdægurs og svo aftur innan nokkurra vikna.
„Sama hvort það er viljaverk eða óviljaverk verður að bregðast við því. Það hefur áður verið hrækt á okkur en ekki þannig að það fór í andlit,“ segir hann.
Slíkt verklag sé einnig virkjað við aðrar aðstæður eins og þegar fólk hefur stungið sig á nál eða rifið hanska við meðhöndlun á sjúklingum.
Tuttugu prósent orðið fyrir áreitni eða ofbeldi
Hann segir reglulega gerðar kannanir meðal starfsfólks um líðan og upplifun í starfi. Í nýlegri könnun hafi verið spurt hversu margir hefðu orðið fyrir áreitni eða ofbeldi í vinnunni af hálfu utanaðkomandi á síðustu tólf mánuðum. Tuttugu prósent hafi svarað því játandi í nýjustu könnunni. Birgir segir hlutfallið of hátt.
„Við verðum því miður stundum fyrir aðkasti. Starfið felur það því miður í sér, því þó svo við séum í langflestum tilfellum að aðstoða fólk sem kallar á aðstoð og vill aðstoð þá er eðli starfsins og mannlífsins í borginni að við sinnum líka fólki sem er ekki alltaf sátt við það.“