Óttaðist að pólitísk afskipti myndu gera Landsvirkjun óstarfhæfa

Óttaðist að pólitísk afskipti myndu gera Landsvirkjun óstarfhæfa

Óttaðist að pólitísk afskipti myndu gera Landsvirkjun óstarfhæfa

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, hóf að gera athugasemdir við starfshætti stjórnar og fjármálaráðuneytisins í lok síðasta árs. Hann taldi afskipti stjórnarinnar af starfi fyrirtækisins óeðlileg og jafnvel ólögleg og óttaðist að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu.

Eftir að Hörður Arnarson tilkynnti um afsögn sína sem forstjóri Landsvirkjunar óskaði fréttastofa eftir öllum samskiptum milli fjármálaráðuneytisins annars vegar og stjórnar og forstjóra Landsvirkjunar hins vegar. Ekki fengust öll gögn afhent en þau gögn sem þó bárust sýna að Hörður hafi fyrst viljað vekja athygli á því sem hann taldi vera óeðlileg afskipti af rekstri fyrirtækisins í nóvember í fyrra. Það er hálfu ári eftir að ný stjórn Landsvirkjunar er kjörin á aðalfundi.

Þá óskaði hann eftir fundi með fjármálaráðherra til að fara yfir samskipti Landsvirkjunar og fjármálaráðuneytisins. Honum varð ekki að ósk sinni því á Þorláksmessu fékk hann þau skilaboð frá stjórnarformanni að Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra hefði óskað eftir því að fundinum yrði breytt. Þann 6. janúar fundaði Daði Már með stjórninni í ráðuneytinu þar sem rætt var um hlutverk stjórnar, stjórnarhætti og upplýsingamiðlun milli Landsvirkjunar og ráðuneytis. Hörður sat ekki þann fund.

Minnisblað um lagalega áhættu og ábyrgð í rekstri Landsvirkjunar

Það er svo í júní í fyrra sem Hörður sendir stjórn Landsvirkjunar þriggja blaðsíðna minnisblað þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við stjórnarhætti.

Í minnisblaðinu lýsir Hörður áhyggjum af auknum samskiptum milli fjármálaráðuneytis og stjórnar Landsvirkjunar utan aðalfunda. Hætta sé á því að slík samskipti verði túlkuð sem pólitísk afskipti. Ef Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, túlki það þannig gæti það leitt til þess að Landsvirkjun verði óstarfhæf þar sem allar helstu ákvarðanir þyrfti að senda til ESA. „Ramminn um hlutverk og heimildir [...] er settur upp þannig að ráðuneytið hefur ekki boðvald yfir stjórn og rekstri Landsvirkjunar og hann verður að virða,“ segir í minnisblaðinu.

Þá séu dæmi þess efnis að ráðuneytið hafi átt frumkvæði að fundum með stjórninni þar sem forstjóri var ekki boðaður. Þar hafi jafnvel verið fjallað um málefni sem ekki ættu að ræðast við ráðuneytið og óskað eftir upplýsingum sem óheimilt er að veita. Vísað er til þess að störf stjórnar hafi í auknum mæli farið fram utan stjórnarfunda og að stjórnarmenn hafi jafnvel haft bein afskipti af daglegum rekstri, svo sem með því að ræða málefni fyrirtækisins beint við ytri hagaðila og starfsmenn Landsvirkjunar.

Segist Hörður telja það skyldu sína að benda á að hugsanlega sé ekki farið að lögum og að það geti skapað alvarlega áhættu. Loks segir Hörður: „Á þeim 16 árum sem ég hef starfað sem forstjóri Landsvirkjunar hef ég ekki áður lent í jafn erfiðri stöðu til að sinna starfi mínu, eins og þeirri sem nú er komin upp“.

Segjast hafa tekið athugsemdir Harðar alvarlega

Stjórn Landsvirkjunar fór þess á leit við Áslaugu Árnadóttur lögmann að skila lögfræðiáliti um stjórnskipulag Landsvirkjunar. Álitið er ítarlegt, 18 blaðsíður, en það er fyrst og fremst reifun á því hvernig túlka beri lög og reglur um stjórnskipulag Landsvirkjunar. Ekki er tekin afstaða til þess hvort stjórnarmenn eða ráðuneytið hafi í raun farið út fyrir heimildir sínar í einstökum tilvikum en tekið er fram að stjórnin og ráðuneytið hafi töluvert svigrúm til samskipta og athafna og að skýr mörk séu á milli hlutverks stjórnar, forstjóra og eiganda fyrirtækisins.

Landsvirkjun sendi frá sér ályktun undir kvöld þar sem vísað er til minnisblaðs Harðar. Þar segir að stjórn fyrirtækisins hafi tekið athugasemdir Harðar alvarlega og meðal annars leitað ofangreinds lögfræðiálits Áslaugar. „Niðurstaðan er skýr: Yfirferð málsins hefur ekki leitt í ljós að stjórn Landsvirkjunar hafi farið út fyrir lögbundið hlutverk sitt eða heimildir. Ágreiningur hefur hins vegar verið um vinnubrögð og túlkun á hlutverkum stjórnar, stjórnarformanns og forstjóra.“

Þá segir í yfirlýsingunni að fundargerðir staðfesti að ríkið hafi á engan hátt haft óeðlileg áhrif á stjórnun félagsins. „Ákvarðanir stjórnar eru teknar á stjórnarfundum, á viðskiptalegum forsendum og með hagsmuni Landsvirkjunar að leiðarljósi.“

Tveimur vikum síðar svarar Hörður áliti Áslaugar. Tekur hann fram að álit hennar sé vel unnið en tekur þó fram að nauðsynlegt sé að skýra betur mörkin milli stjórnar, stjórnarformanns, forstjóra og ráðuneytisins. Landsvirkjun verði að geta sýnt fram á að ákvarðanir séu teknar sjálfstætt, á réttum vettvangi og með formlegum og gagnsæjum hætti. Það sé sérstaklega mikilvægt vegna samkeppnisstöðu fyrirtækisins og reglna um ríkisaðstoð.

Lítið traust á báða bóga

Þann 11. september sendir starfsmaður ráðuneytisins samantekt á ráðherra og aðra starfsmenn ráðuneytisins. Er umfjöllunarefnið fundur starfsmanna ráðuneytisins með formanni og varaformanni stjórnar Landsvirkjunar. Tölvupósturinn ber yfirskriftina Landsvirkjun (viðkvæmt).

Segir í samantektinni að verið sé að skoða þá stöðu sem upp er komin en að „lítið traust virðist vera til staðar á báða bóga sem gerir stjórn erfitt fyrir að sinna sínu starfi“. Kemur fram að stjórn Landsvirkjunar hafi í samstarfi við Boston Consulting lagt í viðamikla vinnu í stefnumótun og samhliða hafi verið gerð úttekt á rekstri félagsins. Stefnt væri að því að kynna nýja stefnu og breytingar sem stjórnin hyggist gera „við fyrsta hentugleika“.

Um það bil tveimur vikum síðar segir Hörður af sér sem forstjóri.

Síðasta bréfið til Daða

Í síðustu viku, þann 26. október, sér Hörður ástæðu til að senda Daða Má tölvupóst eftir viðtal við ráðherrann í Bítinu á Bylgjunni. Þar bendir Hörður á að frá því ný stjórn tók við í fyrra hafi verið haldnir fimm fundir þar sem hann hafi verið beðinn um að víkja eða hann ekki verið upplýstur um fundina fyrr en eftir á. Við einn þessara funda hafi hann engar athugasemdir. „Ég hef ítrekað gert formlegar athugasemdir við stjórn Landsvirkjunar um að mér hafi verið meinað að taka þátt í hinum fjórum stjórnarfundunum og tel að það hafi verið óheimilt á grundvelli þeirra laga sem gilda um Landsvirkjun,“ segir í tölvupósti Harðar. Hann telur upp tvo fundi sem hann var beðinn um að víkja af og bætir við að einn fundinn hafi hann ekki verið upplýstur um fyrr en þremur mánuðum eftir að hann var haldinn og annan fund þremur vikum síðar.

Stjórnin hafnar afskiptum

Í áðurnefndri yfirlýsingu Landsvirkjunar er því hafnað að Herði hafi verið haldið frá umræðu um rekstur félagsins. „Á um eins og hálfs árs starfstíma stjórnarinnar hefur hún tvisvar fundað án hans þegar fjallað var um athugasemdir hans við störf stjórnarinnar. Á tveimur öðrum fundum vék hann af fundi undir dagskrárliðum sem vörðuðu hann sjálfan, eins og við á í slíkum tilvikum. Stjórn hefur lögbundið hlutverk um eftirlit með störfum forstjóra. Til að sinna því hlutverki er eðlilegt að hún ræði þau mál án hans viðveru.“

Þá er því sömuleiðis hafnað að stjórnin hafi skipt sér af daglegum rekstri Landsvirkjunar. Í þeim fáu tilvikum sem stjórnin hafi átt samskipti við ytri aðila eða starfsfólk hafi það verið gert í samráði við og með samþykki Harðar. „Engar ákvarðanir eru hafnar yfir gagnrýni og sjálfsagt að ræða vinnubrögð á málefnalegan hátt. Það er hins vegar ekki rétt að halda því fram að vikið hafi verið frá lögum eða góðum stjórnarháttum. Slíkar fullyrðingar samrýmast ekki gögnum málsins og því telur stjórnin rétt að leiðrétta þær,“ segir í yfirlýsingunni.

#afskipti #gera #myndu #pólitísk #óttaðist


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-11-02-ottadist-ad-politisk-afskipti-myndu-gera-landsvirkjun-ostarfhaefa-491525

📰 Aðrar fréttir

Fimm létust þegar sandbakki féll eftir mikla rigningu
📅 09.11.2026 👁️ 1
Fimm létust þegar sandbakki féll eftir mikla rigningu
Minnst tvær konur og þrjú börn létust þegar sandbakki hrundi á tjöld suður af Deir al-Balah á Mið-Gaza í dag. Sandbakkinn féll eftir miklar rigningar ...
Mal­bika í Reykja­vík og Garða­bæ - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 1
Mal­bika í Reykja­vík og Garða­bæ - Vísir
Gert er ráð fyrir að framkvæmdirnar á Miklubraut í Reykjavík standi yfir frá klukkan 14 til 17 og verður rampurinn frá Miklubraut að Réttarholtsvegi l...
Merz tilnefnir Ilse Aigner sem næsta forseta Þýskalands
📅 08.11.2026 👁️ 2
Merz tilnefnir Ilse Aigner sem næsta forseta Þýskalands
Friedrich Merz kanslari Þýskalands tilkynnti í gær að hann ætli sér að tilnefna stjórnmálakonuna Ilse Aigner næsta forseta Þýskalands á næsta ári. Aig...
Malbiksviðgerðir í Garðabæ og Reykjavík á morgun
📅 08.11.2026 👁️ 2
Malbiksviðgerðir í Garðabæ og Reykjavík á morgun
Malbiksviðgerðir verða á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Hafnarfjarðarvegar og á rampi frá Miklubraut að Réttarholtsvegi á morgun, mánudag ef veður ley...
Evrópa efins um ó­ljóst sam­komu­lag Trumps - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 2
Evrópa efins um ó­ljóst sam­komu­lag Trumps - Vísir
Eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti fundaði með Kirill Dmitriev, erindreka Pútíns, í Hvíta húsinu á fimmtudaginn síðastliðinn boðaði hann „stórt o...
Viðurkennir að hafa haldið framhjá með meintum kínverskum njósnara
📅 08.11.2026 👁️ 3
Viðurkennir að hafa haldið framhjá með meintum kínverskum njósnara
Jensen Huang, forstjóri Nvidia, hefur viðurkennt að hafa haldið framhjá eiginkonu sinni til fjörutíu ára með konu sem bandaríska leyniþjónustan telur ...
Vegagerðin varar við hálku
📅 08.11.2026 👁️ 3
Vegagerðin varar við hálku
Vegagerðin varar við hálku í fyrramálið, einkum um norðanvert landið en einnig suðvestantil.Í veðurspá frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar sem send var ...
Doctor who treated victims of Krakow shooting speaks to the BBC
📅 08.11.2026 👁️ 1
Doctor who treated victims of Krakow shooting speaks to the BBC
Two doctors were eating near the city's Main Market Square when a gunman began firing at random.
Öfug­snúin staða að um­hverfis­ráð­herra sé „harðasti virkjunarsinni landsins“ - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 3
Öfug­snúin staða að um­hverfis­ráð­herra sé „harðasti virkjunarsinni landsins“ - Vísir
Um helgina fór fram flokksráðsfundur Vinstri grænna þar sem samþykktar voru ályktanir flokksins. Í þeim segir meðal annars að flokksráðið gagnrýni fyr...
Að minnsta kosti 34 drukknuðu á leið frá Senegal
📅 08.11.2026 👁️ 4
Að minnsta kosti 34 drukknuðu á leið frá Senegal
Að minnsta kosti 34 manns drukknuðu eftir að lítill flatbotna trébátur með farandfólk innanborðs sökk undan norðvesturströndum Senegals, um 180 kílóme...
Nvidia launches investigation into CEO's affair with suspected Chinese spy
📅 08.11.2026 👁️ 4
Nvidia launches investigation into CEO's affair with suspected Chinese spy
Jensen Huang also admitted to having been "unfaithful "to his wife and apologised for hurting her and their children.
Búist við tals­verðri hálku - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 3
Búist við tals­verðri hálku - Vísir
Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir vegfarendum á að í kvöld sé veður milt, úrkomusamt og með hægri vestlægri átt. Í nótt verður áfram hægur vindur ...
White House vows to keep up immigration crackdown after midterms defeat
📅 08.11.2026 👁️ 3
White House vows to keep up immigration crackdown after midterms defeat
The Department of Homeland Security also insists it is not backing away on the round-up.
Maya Jama steps down as host of reality TV show Love Island
📅 08.11.2026 👁️ 4
Maya Jama steps down as host of reality TV show Love Island
The presenter tells fans it is "time to throw myself into something new" after recent Celebrity Traitors success.
50+: Hvers vegna tíminn líður hraðar þegar við eldumst - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 5
50+: Hvers vegna tíminn líður hraðar þegar við eldumst - Vísir
En nú okkur sjálf! Allt í einu er til dæmis kominn nóvember. Hvernig gerðist það?  Var árið ekki bara rétt að byrja?  Og hvers vegna er alltaf föstuda...
Hættir í Love Island - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 4
Hættir í Love Island - Vísir
„Allt tekur enda um síðir,“ skrifar Jama á Instagram er hún tilkynnti brottför sína af ástareyjunni. Hún þakkar aðdáendum sínum innilega og segir þætt...
Silfrastaðakirkja komin aftur heim
📅 08.11.2026 👁️ 4
Silfrastaðakirkja komin aftur heim
Silfrastaðakirkja var byggð árið 1896, fyrir hundrað og þrjátíu árum, og var friðuð árið 1990. Kirkjan er merkileg fyrir margar sakir og stendur Skagf...
Meira en helmingur rúma á Vogi stendur auður
📅 08.11.2026 👁️ 4
Meira en helmingur rúma á Vogi stendur auður
Vogur leitar leiða, í samráði við Landspítala, til að manna starfsemina svo hægt sé að taka á móti fleirum í meðferð. Álag hefur aukist á fíknigeðdeil...
Á annað hundrað manns fögnuðu 100 ára afmæli kýrinnar Huppu
📅 08.11.2026 👁️ 3
Á annað hundrað manns fögnuðu 100 ára afmæli kýrinnar Huppu
Huppa var fædd 3. nóvember 1926 og haldið var upp á afmælið með fjölmörgum erindum og umræðum í félagsheimilinu á afmælisdeginum sjálfum.Huppa var bra...
Vilja ástvini til baka úr Rússlandsher
📅 08.11.2026 👁️ 4
Vilja ástvini til baka úr Rússlandsher
Mótmælendur komu saman við rússneska sendiráðið í Dóminíska lýðveldinu á dögunum til að krefjast þess að landar þeirra fái að snúa heim af víglínunni ...
Top Democrat Hakeem Jeffries 'a hard yes' on impeaching Pete Hegseth
📅 08.11.2026 👁️ 4
Top Democrat Hakeem Jeffries 'a hard yes' on impeaching Pete Hegseth
But the Pentagon said the defence secretary would not be deterred by "phony investigations".
Bíllinn á nokkru dýpi í tölu­verðan tíma - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 4
Bíllinn á nokkru dýpi í tölu­verðan tíma - Vísir
Björgunarsveitin Elliði greinir frá því í færslu á Facebook að aðstæður útkallsins hafi verið hættulegar björgunarsveitarmönnum en Kleifá sé óvenju va...
Fram­sókn hafnar „ófaglegum vinnu­brögðum“ Ingu - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 4
Fram­sókn hafnar „ófaglegum vinnu­brögðum“ Ingu - Vísir
Er þetta meðal þess sem kom fram í stjórnmálaályktun Framsóknar en miðstjórnarfundur flokksins fór fram á Laugarbakka um helgina. Þá segir í ályktunin...
Ís­lensk hjón segja frá swing-lífsstílnum: „Við tókum hjóna­bandið al­veg í sundur“ - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 5
Ís­lensk hjón segja frá swing-lífsstílnum: „Við tókum hjóna­bandið al­veg í sundur“ - Vísir
Og nei, þetta eru ekki einhverjir sérvitringar sem búa í kynlífskjallara með rauðum flauelstjöldum og speglum í loftinu. Þetta er ósköp venjulegt fólk...
Orðið á götunni: Framsókn skilar auðu eftir miðstjórnarfund – flokkurinn gæti þurrkast út af þingi
📅 08.11.2026 👁️ 4
Orðið á götunni: Framsókn skilar auðu eftir miðstjórnarfund – flokkurinn gæti þurrkast út af þingi
Mikið tómahljóð var á miðflokksfundi Framsóknar sem haldinn var um helgina á Laugarbakka. Lilja Alfreðsdóttir, formaður flokksins og fyrrum þingmaður,...
Krefjast aðgerða gegn hatursorðræðu og fordæma þjóðarmorð á Gaza
📅 08.11.2026 👁️ 5
Krefjast aðgerða gegn hatursorðræðu og fordæma þjóðarmorð á Gaza
Flokksráðsfundur VG fordæmir hatursorðræðu og hvers kyns niðurlægingu, mismunun eða ógnir sem beinast gegn fólki meðal annars vegna uppruna, hörundsli...
Ó­vel­kominn aðili hélt að hann væri í leigu­bíl - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 3
Ó­vel­kominn aðili hélt að hann væri í leigu­bíl - Vísir
Er þetta meðal þeirra mála sem koma fram í yfirliti lögreglu frá deginum í dag.  Þá bárust lögreglu þrjár tilkynningar um ósætti milli fjölskyldumeðli...
Ólafur Ragnar hafi farið með hlut­verk flug­freyju, flug­stjóra og ræstitæknis - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 3
Ólafur Ragnar hafi farið með hlut­verk flug­freyju, flug­stjóra og ræstitæknis - Vísir
Lúðvík Bergvinsson, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og hæstaréttarlögmaður, segir forsetann fyrrverandi vera mann stórra yfirl...
40 ára Íslandsmet í lekanda slegið og Evrópumet sett
📅 08.11.2026 👁️ 5
40 ára Íslandsmet í lekanda slegið og Evrópumet sett
Hátt í þrisvar sinnum fleiri greinast hlutfallslega með lekanda hér á landi en í öðrum Evrópulöndum. Sóttvarnalæknir segir mikilvægt að fólk greinist ...
Skildi sex ára dóttur eftir eina um miðja nótt til að halda sæti hans í Pokemon röð
📅 08.11.2026 👁️ 3
Skildi sex ára dóttur eftir eina um miðja nótt til að halda sæti hans í Pokemon röð
John-Michael Dooley, ungur faðir frá Suður Karólínu fylki, hefur verið handtekinn eftir að hafa skilið sex ára dóttur sína úti um miðja nótt. Lét hann...
Ólafur spyr hvað Stefáni Eiríkssyni og samstarfsfólki hans gangi til – „RÚV hafnaði myndinni um Ómar“
📅 08.11.2026 👁️ 2
Ólafur spyr hvað Stefáni Eiríkssyni og samstarfsfólki hans gangi til – „RÚV hafnaði myndinni um Ómar“
Ólafur Sveinsson, kvikmyndagerðarmaður, segir að RÚV hafi hafnað því að sýna heimildarmynd hans um Ómar Ragnarsson og gefur lítið fyrir svör um pening...
Framsókn segir vinnubrögð ráðherra við gerð námsmats vera ófagleg
📅 08.11.2026 👁️ 3
Framsókn segir vinnubrögð ráðherra við gerð námsmats vera ófagleg
Miðstjórnarfundur Framsóknarflokks var haldinn á Laugarbakka í Miðfirði um helgina.Í ályktun fundarins kemur fram að ófaglegum vinnubrögðum barna- og ...
Trump heitir endurkomu: „Þeir geta elt okkur uppi“
📅 08.11.2026 👁️ 3
Trump heitir endurkomu: „Þeir geta elt okkur uppi“
Trump heitir endurkomu: „Þeir geta elt okkur uppi“ Trump var tvisvar kærður til emb­ætt­is­missis á fyrra for­seta­tíma­bili sínu. Nú geta demókratar ...
Tveir erlendir ferðamenn farþegar bílsins sem endaði í Kleifá
📅 08.11.2026 👁️ 3
Tveir erlendir ferðamenn farþegar bílsins sem endaði í Kleifá
Farþegar bílsins sem endaði í Kleifá í morgun eru erlendir ferðamenn. Ekki er vitað um líðan þeirra. Jónas Hallgrímur Ottósson, yfirlögregluþjónn Lögr...
Safna fyrir Pálínu eftir dóm í máli Ingós – óvíst um aðkomu Haraldar
📅 08.11.2026 👁️ 2
Safna fyrir Pálínu eftir dóm í máli Ingós – óvíst um aðkomu Haraldar
Söfnun er hafin fyrir málskostnaði Pálínu Helgu Þórarinsdóttur eftir að Landsréttur dæmdi ummæli hennar um Ingólf Þórarinsson tónlistarmann, Ingó veðu...
Hútar segja Sádi-Araba bera ábyrgð á loftárásum í Jemen
📅 08.11.2026 👁️ 3
Hútar segja Sádi-Araba bera ábyrgð á loftárásum í Jemen
Fjölmiðlar sem eru tengdir Hútum segja 33, hið minnsta, hafa verið drepna í loftárásum Sádi-Araba í Jemen í dag.Meðal látinna eru konur og börn.Hátt í...
Fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Við­reisnar í leyfi vegna krabba­meins - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 4
Fram­kvæmda­stjóri þing­flokks Við­reisnar í leyfi vegna krabba­meins - Vísir
Sigurjón greinir frá þessu í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum. Hann segir að fyrir nokkrum vikum hafi hann fengið verk í síðuna. Við skoðun hafi strax or...
Erfiðar að­stæður á vett­vangi slyssins - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 3
Erfiðar að­stæður á vett­vangi slyssins - Vísir
Þetta segir Jónas Hallgrímur Ottósson í samtali við fréttastofu en aðgerðum á slysstað er nýlokið. Jónas gat ekki sagt til um ástand farþeganna í bíln...
Dense fog could disrupt Monday morning’s rush hour
📅 08.11.2026 👁️ 1
Dense fog could disrupt Monday morning’s rush hour
Fog could disrupt Monday morning’s commute
Footage shows derailed carriages after fatal train crash in Egypt
📅 08.11.2026 👁️ 4
Footage shows derailed carriages after fatal train crash in Egypt
It is yet unclear what caused the accident but Egyptian President Abdel Fattah al-Sisi said an investigation is underway and will "hold accountable an...
Leik­fang úr hillunni skilaði fram­förum sem engan óraði fyrir - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 3
Leik­fang úr hillunni skilaði fram­förum sem engan óraði fyrir - Vísir
Hjónin hafa komið á fót verkefninu Bíladegi Birtu Maríu, sem nýverið hlaut 700 þúsund króna styrk úr Góðgerðarfesti Blue. Með framtakinu vilja þau vek...
Hvar var fagþekking kennarans í Síðuskóla?
📅 08.11.2026 👁️ 3
Hvar var fagþekking kennarans í Síðuskóla?
Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar: Einn kennaranna á ljósmynd Síðuskóla sem birt var til stuðnings transhugmyndafræði er, eins og greinarhöfundur, sjúk...
Minnst fjórir látnir og tugir slasaðir eftir lestarslys í Egyptalandi
📅 08.11.2026 👁️ 4
Minnst fjórir látnir og tugir slasaðir eftir lestarslys í Egyptalandi
Minnst fjórir eru látnir og talið að um 88 hafi slasast þegar tvær lestar skullu nærri borginni Giza í Egyptalandi.Yfirvöld segja að lest sem var á le...
Minnst sjö látnir og yfir 100 slasaðir eftir lestarslys í Egyptalandi
📅 08.11.2026 👁️ 4
Minnst sjö látnir og yfir 100 slasaðir eftir lestarslys í Egyptalandi
Minnst sjö eru látnir og yfir 100 slasaðir eftir að tvær lestar skullu nærri borginni Giza í Egyptalandi.Yfirvöld segja að lest sem var á leið frá Giz...
Fjórir látnir og tugir slasaðir eftir lestar­slys - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 4
Fjórir látnir og tugir slasaðir eftir lestar­slys - Vísir
Í umfjöllun AP-fréttastofunnar kemur fram að lest í Fayoum héraði hafi rekist aftan á aðra lest með þeim afleiðingum að önnur lestin fór út af sporinu...
Stólaleikurinn hans Trumps
📅 08.11.2026 👁️ 4
Stólaleikurinn hans Trumps
Starfsmannamál Hvíta hússins hafa verið tilefni margra frétta undanfarið.Í gær bárust fréttir af því að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefði boðið Dan...
Seven dead and more than 100 injured after trains collide in Egypt
📅 08.11.2026 👁️ 4
Seven dead and more than 100 injured after trains collide in Egypt
Several carriages derailed after two trains travelling in the same direction crashed outside the city of Giza.
Skurð­læknar í há­degis­mat björguðu manns­lífum - Vísir
📅 08.11.2026 👁️ 3
Skurð­læknar í há­degis­mat björguðu manns­lífum - Vísir
Breska ríkisútvarpið greinir frá því að þeir Michal Pędziwiatr og Dr Mateusz Wierdak hafi verið að snæða hádegismat með fjölskyldum sínum í miðborg bo...
Bókaspjall: Lögreglumaður í sálarkreppu
📅 08.11.2026 👁️ 4
Bókaspjall: Lögreglumaður í sálarkreppu
Yndi er af haganlega gerðri sögufléttu og ráðgáta með óvæntum en rökréttum endi er listasmíði sem hefur gildi í sjálfri sér. Þetta hefur verið eitt he...
Verðbólgan hækkar leiguna en bítur í hagnaðinn
📅 08.11.2026 👁️ 4
Verðbólgan hækkar leiguna en bítur í hagnaðinn
Verðbólgan hækkar leiguna en bítur í hagnaðinn Rekstur þriggja stærstu fast­eigna­fé­lag­anna í Kaup­höll­inni hefur skilað auknum hagn­aði það sem af...