Áður en fyrstu tölur berast er óhætt að benda á fyrri fréttavakt okkar í dag um þingkosningarnar en þar er eitt og annað fróðlegt að finna um þingkosningarnar.
Fyrstu kjörstöðum á austurströnd Bandaríkjanna var lokað nú fyrir skemmstu. Von bráðar munu fyrstu tölur koma í ljós.
Samkvæmt könnun eru 75% kjósenda óánægðir eða reiðir vegna stöðu landsins. Flestir kjósendur segja efnahagsmálin sitt helsta áhyggjuefni. Rúmlega 79 þúsund manns voru spurðir hvaða málefni væri þeim mikilvægast í kosningunum í könnun á kjörstöðum. Um 39% sögðu efnahagsmál. Næst flestir nefndu stöðu lýðræðisins eða 32%. Þar á eftir voru innflytjendamál en 14% nefndu þau.
Mismunandi reglur gilda um móttöku og vinnslu kjörseðla í ólíkum ríkjum Bandaríkjanna. Talning getur þar af leiðandi gengið mishratt fyrir sig eftir ríkjum.
Þá getur líka haft áhrif hversu margir kjósa utan kjörfundar.
Góða kvöldið og velkomin á fréttavakt um þingkosningarnar í Bandaríkjunum. Ég heiti Brynja Dögg Friðriksdóttir og verð á fréttavaktinni í nótt.