Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hafa verið æfur af reiði þegar ljóst varð að Repúblikanar hefðu beðið afhroð í þingkosningunum vestan hafs sem fram fóru í gær.Demókratar tryggðu sér meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings og veittu Repúblikönum þar með þungt pólitískt högg.Á meðan ráðherrar og nánustu samstarfsmenn forsetans yfirgáfu kosningavöku í Hvíta húsinu hélt Trump sig í einkaíbúð sinni, þar sem hann fylgdist með ósigrinum verða að veruleika í beinni útsendingu.
Ráðherrarnir hurfu úr veislunni: Trump sagður hafa setið eftir „lamaður af reiði“