„Framkvæmdarvaldinu verða settar skorður, þeir geta ekki farið aftur í stríð án þess að sækja umboð til þingsins, þeir fá ekki peninga í allt sem þá langar, þeir geta ekki sent ICE-sveitirnar inn í allar borgir, hendur þeirra verða mjög bundnar.“
Þetta segir Kristján Guy Burgess alþjóðastjórnmálafræðingur um nýafstaðnar kosningar í Bandaríkjunum þar sem Demókratar unnu stórsigur og eru með meirihluta þingmanna í bæði fulltrúa- og öldungadeild.
Kristján segir breytt valdajafnvægi í Washington vera stærstu tíðindi kosninganna, sigur Demókrata sé stærsti sigur flokks í Bandaríkjunum í 50 ár.
„Í tíu ár höfum við horft upp á það að demókratar séu veikir og nái ekki að vinna kosningar og núna vinna þeir stærstu kosningar í 50 ár.“
Rætt var við þá Kristján og Friðjón R. Friðjónsson í Kastljósi.