Forsætisráðherra vill setja á fót sanngirnisbótasjóð sem tekur til barna sem urðu fyrir illri meðferð eða ofbeldi í vistun utan heimilis fyrir atbeina stjórnvalda. Áhersla verður lögð á sálrænan stuðning.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kynnti frumvarpið á ríkisstjórnarfundi í gær og það var svo lagt fram í samráðsgátt síðdegis.
Með frumvarpinu er komið á varanlegu úrræði fyrir þá sem urðu fyrir illri meðferð eða ofbeldi í vistun utan heimilis sem börn.
Úrræðið tekur til vistunar frá mars 1947, bæði á opinberum stofnunum og einkaheimilum. Bætur verða í þremur flokkum; ein, þrjár eða fimm milljónir, og sálrænn stuðningur verður háður faglegu mati á þörfum viðkomandi.
Sjálfstæð sjóðsstjórn tekur ákvarðanir á grundvelli umsókna en móttaka þeirra hefst 1. janúar 2028 verði frumvarpið að lögum á þessu þingi. Dagleg umsýsla verður hjá sýslumanni.
Úrræðið er bundið við vistun barna en nær ekki til ýmiss konar vistunar fullorðinna einstaklinga. Þótt bótagreiðslur nú séu lægri en þær sem voru er stóraukin áhersla á sálrænan stuðning. Ekki er gert ráð fyrir í frumvarpinu að kæra megi ákvarðanir sjóðsstjórnar til æðra stjórnvalds. Frumvarpið er til umsagnar í samráðsgátt til 17. nóvember.