Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir skýra og stefnu í útlendingamálum ekki vera harðneskju. Til þess að samfélagið geti verið frjálslynt og opið þurfi að vera skýrari rammi um útlendingamál, sem og aðra málaflokka. Það gangi ekki að útlendingamálin séu eini málaflokkurinn þar sem stjórnvöld hafi ekki skýra sýn á að hverju sé stefnt.
Þorbjörg hefur boðað aðgerðir og herta reglugerð í málefnum útlendinga. Frumvarp hennar um breytingu á dvalarleyfiskafla útlendingalaga var afgreitt í ríkisstjórn í lok október. Í ársbyrjun var frumvarp hennar samþykkt um að afturkalla alþjóðlega vernd ef útlendingur fremur alvarleg eða ítrekuð afbrot eða telst ógn við öryggi ríkisins.
Markmiðið að afnema séríslenskar reglur
Þorbjörg segist skoða mál útlendinga sérstaklega með tilliti til reynslu annarra Norðurlanda. Ráðherrar útlendingamála á Norðurlöndunum fundi reglulega og segist Þorbjörg ekki taka neitt eitt land til fyrirmyndar í málaflokknum en segir þó að stefnur Dana og Svía séu að sumu leyti góðar.
„Mér finnst sumt af því sem er verið að gera í Danmörku mjög gott, sumt sem Svíar eru að gera mjög gott, og þeir eru heiðarlegir með það að þeir eru að gera sumt of seint.“
Reynslan sýni að opnustu reglurnar, samhliða því að hafa ekkert eftirlit og lítinn stuðning innan kerfanna, skapi ójafnvægi í samfélaginu og séu „fínasti jarðvegur fyrir fordóma“. Við gerð reglna og frumvarpa í málaflokknum segir Þorbjörg tvo þætti skipta meginmáli.
„Við erum að afnema svona áberandi séríslenskar reglur og læra af reynslu hinna Norðurlandanna.“
Lögreglumenn á Íslandi hlutfallslega mun færri en annars staðar
Í þættinum var Þorbjörg einnig spurð út í fjölgun lögreglumanna og skipulagða brotastarfsemi. Eitt af fyrstu verkum nýrrar ríkisstjórnar var að fjölga lögreglumönnum um 50 en í norrænum samanburði eru langtum færri lögreglumenn starfandi sé miðað við íbúa- og ferðamannafjölda.
„Lögregla hefur um langa hríð verið vanfjármögnuð og þegar fólk er að tala um löggæsluna og þetta heyrir maður líka hjá almenningi að fólk kann að meta samfélagslöggæslu, að lögregla sé sýnilega í sínu hverfi.“
Hvað varðar skipulagða brotastarfsemi segir Þorbjörg ljóst að hún hafi hug á að sækja að þeim 20 hópum sem standi að baki skipulagðri glæpastarfsemi hérlendis með þeim lagaheimildum sem hún geti beitt.
„Samhliða því að fjölga lögreglumönnum, samhliða því að leggja fram stefnu í löggæslumálum, samhliða því að ætla að efla lögregluna í landinu með því að stækka lögregluumdæmin, nálgumst við verkefnin heildstætt.“
Brotthvarf Jóns hafi áhrif á flokkinn
Jón Gnarr þingmaður yfirgaf þingflokk Viðreisnar í október og segir Þorbjörg það vera áfall og missi fyrir þingflokk að missa þingmann.
„Þetta hefur verið erfitt en við höfum átt mjög góð samtöl í þingflokknum í kjölfar þessa og ég lít svo á að þessu sé núna lokið.“
Þá segir hún að fjallað hafi verið um brotthvarfið tilhlýðilega og mikið í fjölmiðlum en að öðru leyti hafi hún ekki mikið að segja um málið.
Hægt er að horfa á viðtalið við Þorbjörgu í heild sinni hér í spilaranum fyrir neðan.