Þetta kemur fram í svörum Sæunnar Óskar Unnsteinsdóttur, sviðsstjóra þróunar og skipulags hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, ASHB, við fyrirspurn Vísis.
„Vegna þessa eigum við því miður ekki áreiðanlegar innstigstölur fyrir þetta tímabil, og á þetta við um allt leiðakerfið í heild sinni,“ segir Sæunn.
Hleypa farþegum inn án skönnunar
Greiðslugögnin sem stuðst hefur verið við gefa takmarkaða mynd af notkuninni. Þar koma til dæmis ekki fram ferðir barna sem ferðast frítt.
Þá hefur tæknin við að staðfesta fyrirframgreidda miða ekki staðist væntingar um skilvirkni og áreiðanleika. Þegar tafir verða á staðfestingu hafa vagnstjórar gjarnan vísað farþegum inn án þess að þeir skanni miðana sína.
„Þetta er gert til að tryggja að vagnar haldi áætlun, sem skiptir höfuðmáli, sérstaklega á álagstímum,“ segir í svarinu.
Sæunn tekur fram að þetta eigi eingöngu við um fyrirframgreidda miða. Þetta eigi ekki við þegar farþegar greiða með snertilausum kortagreiðslum um borð.
Kostnaður við nýtt kerfi liggur ekki fyrir
Enn er verið að leggja lokahönd á ákvarðanir um nýtt talningakerfi. Áætlaður kostnaður liggur ekki fyrir og félagið gerir ráð fyrir að geta veitt nánari upplýsingar um innleiðingu og tímasetningar í lok nóvember.
Í umsögn ASHB sem lögð var fyrir borgarráð í október kom fram að markmiðið væri að ljúka uppsetningu nýs talningarbúnaðar í lok þessa árs eða byrjun þess næsta. Félagið tók við rekstri almenningssamgangna síðastliðið vor.
Samhliða undirbúningi nýs talningarkerfis vinnur félagið að einföldun og endurbótum á greiðslukerfinu. Sæunn segir að sú vinna muni einnig skila nákvæmari upplýsingum um notkun þjónustunnar.
Betri gögn eigi að nýtast til að greina farþegaflæði, bregðast hraðar við álagi og laga leiðakerfið að þörfum farþega. Þá stefni félagið að því að birta talningar á heimasíðu sinni sem rauntímagögn.
Málið kom upp vegna Kjalarness
Gagnaskorturinn kom fram í umsögn félagsins um tillögu Vinstrisins um bættar almenningssamgöngur á Kjalarnesi innan hundrað daga. ASHB taldi ólíklegt að hægt yrði að bæta þjónustuna með markverðum hætti innan þess frests. Svæðið yrði skoðað nánar samhliða aukinni gagnasöfnun.
Borgarráð vísaði tillögunni frá 22. október. Áheyrnarfulltrúi Vinstrisins gagnrýndi afgreiðsluna og sagði þörfina fyrir betri samgöngur þegar þekkta. Ekki þyrfti að bíða eftir niðurstöðum talningakerfis til að bæta þjónustuna.