Þeir Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, og Hakeem Jeffries, væntanlegur þingforseti fulltrúadeildarinnar, hafa einnig lofað hundrað daga áætlun sem er meðal annars ætlað að lækka verðlag í Bandaríkjunum og snúa við niðurskurði í sjúkratryggingum og heilbrigðisþjónustu.
Demókratar unnu stórsigur í kosningunum í gær og tryggðu sér meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins. Þeir hafa tryggt sér að minnsta kosti 54 öldungadeildarsæti af hundrað en enn eru úrslit kosninga í tveimur ríkjum óráðin.
Þá er útlit fyrir að Demókratar muni ná í það minnsta 250 sætum í fulltrúadeildinni. Það er mun meira en kannanir höfðu gefið til kynna.
Jeffries byrjaði blaðamannafund sinn í dag á því að stæra sig af sigri Demókrata.
„Mike Johnson [leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeildinni] hafði rétt fyrir sér. Kannanirnar voru rangar,“ sagði Jeffries á blaðamannafundi í dag.
„Það var engin blá bylgja. Þetta var bandarísk flóðbylgja.“
Þá gaf Jeffries til kynna að Demókratar hefðu móttekið skilaboðin frá kjósendum.
„Við munum vinna hörðum höndum að því að ná fram þeim miklu breytingum sem þið eigið skilið.“
Þá sagði Jeffries að hann teldi að Demókratar myndu ná að minnsta kosti 255 þingsætum í fulltrúadeildinni, sem væri sögulegur árangur. Hann sagði kjósendur hafa kallað eftir breytingum og að Demókratar myndu svara kallinu.
Áhugasamir geta horft á hluta blaðamannafundar Jeffries í spilaranum hér að neðan.
Spilltasti forseti Bandaríkjanna
Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, hélt einnig blaðamannafund nú undir kvöld. Hann fagnaði árangri Demókrataflokksins og sagðist hafa fimm orð til að færa bandarísku þjóðinni [fjögur á íslensku]:
„Hjálpin er á leiðinni.“
Schumer rifjaði það upp að þegar hann sagði í fyrri að Demókratar ættu möguleika á því að ná meirihluta í öldungadeildinni hafi fólk hvolft augunum. Hann sagði að Demókratar hefðu haldið í þá trú og unnið að þessu markmiði. Sú vinna hefði skilað árangri.
„Hvað olli þessari breytingu?“ spurði Shcumer.
Hann sagði frambjóðendur Demókrata hafa unnið sem eina heild fyrir kosningarnar og að skilaboð þeirra til kjósenda hefðu verið skýr og markviss. Þeir hefðu hlustað á áhyggjur kjósenda og lofað að bregðast við þeim.
Hann sagði hátt verðlag hafa verið helsta áhyggjuefni kjósenda og að spilling Trumps hefði verið í öðru sæti.
„Við vissum að hann var spilltasti forsetinn í sögu Bandaríkjanna, með miklum mun, og að fólk hataði það.“
Schumer sagði að kjósendur vissu að Demókratar væru með þeim í liði og að þeir hefðu fundið frábæra frambjóðendur fyrir kosningarnar, sem hefðu kunnað að tjá sig um málefni kjósenda sinna.
Þá sagði hann að nú þyrftu Demókratar að standa við stóru orðin og sagði að það myndu þeir gera. Nefndi hann meðal annars rannsóknir á Trump og embættismönnum hans.
Demókratar í dómsmálanenfd fulltrúadeildarinnar auglýstu í dag eftir rannsakendum og öðru starfsfólki til að aðstoða þá.
Blaðamannafund Schumers má sjá í spilaranum hér að neðan.
Trump segist ekki hafa haft aðra kosti en stríð
Repúblikanar standa frammi fyrir því að þurfa að komast til botns í því hvað klikkaði hjá þeim og finna sér fótfestu á nýjan leik, ef svo má segja. JD Vance varaforseti birti langa færslu í dag þar sem hann sagði að stríðið gegn Íran hefði haft mikil áhrif á niðurstöðurnar.
Aðrir hafa sagt að Repúblikanar hafi ekki rætt nógu vel við kjósendur um það hvað hagkerfi Bandaríkjanna væri í raun stöðugt og hvað fólk hefði það gott.
One of the things the data analysts on our side obsessed over was "composition"—whether the electorate looked close enough to 2024 for Republicans to win. And despite polls that showed a Democrat blowout, the data kept on telling us the same story: in some states turnout was merely OK, in other states it was downright amazing, and in no state was it catastrophic. There was a genuine sense of optimism on our team: our people were showing up. So, I asked the smartest data guy I know, does that mean we're going to shock the world? "No," he told me. "We might do better than the polls suggest. But the data is telling us that a lot of Trump/Vance 2024 voters are pissed and planning to vote for the other guys. Our voters are turning out, but they may not vote for us." Well, that looks prophetic now. Our voters did show up. In Florida, for example, the electorate was 9 points more Republican than Democrat, just a couple points worse than 2024. Undoubtedly there were places we could have done better on turnout. But the main problem is not turnout. The main problem is that many people who voted for Trump/Vance in 2024 voted for Democrats in 2026. There will be a lot of infighting and arguing over what happened and why that is. One of the pollsters I really respect told me that our economic messaging wasn’t sharp enough down the stretch. I’m sure that’s true. But the real reason we lost is obvious to almost everyone. Another pollster—one of the smartest people I know in politics, told me yesterday we’d lose the generic ballot by 13 points. I felt negative going into Tuesday, but even I was shocked by this. In his polling, he saw that a lot of Trump 2024 voters were angry and planning to vote for Democrats. He asked those voters who had abandoned us what would cause them to come back on our team. The top four answers, accounting for nearly all of the responses were: 1) End the war 2) Focus on cost of living/inflation 3) Put America First 4) Change our relationship to Israel Our voters showed up. And the above four reasons are why many of them voted for Democrats. This is according to a pollster who nailed the results. While many spent Monday attacking Rachel Campos Duffy for calling for a diplomatic resolution to the conflict, it turns out her political advice was sound. (She’s also a great person.) In the next few months, there's going to be a lot of gaslighting. Expect to hear any number of establishment politicians say the solution to our woes is amnesty. I'm open to the idea that we should change enforcement—by focusing more on businesses that hire illegal labor, for instance. But anyone pushing amnesty is lying to you. The reason we lost is the war. The president himself said so last night. If you'd like to argue it was worth it, that losing the Senate for the next 6 years was worth it, then do so. Argue it was a worthwhile cost to pay. Agree or disagree, that's at least honest. But everyone knows why we lost. And any honest conversation about where we go from here must start there. I remain hopeful about our country. To the people who are pissed off and want to say, “I told you so”: you’re right, you did tell us so. Take that energy into electing Republicans who share your worldview. To the people who are just pissed at the results, you should be. Let’s take that anger and get back to the work of saving our country.
— JD Vance (@JDVance) November 4, 2026
Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddi við blaðamenn á sjöunda tímanum í kvöld. Þá sagðist hann frekar sammála JD Vance um að Repúblikanar hefðu tapað kosningunum vegna stríðsins gegn Íran. Þess vegna hefði eldsneytisverð „hækkað lítillega“.
Þá sagðist Trump ekki sjá eftir neinu og ef hann gæti farið aftur í tímann myndi hann samt hefja stríðið aftur.