Færri innlagnir á sjúkrahúsið Vog eru sérstaklega alvarlegar fyrir fólk sem neytir efna sem valda mögulega lífshættulegum fráhvörfum, segir læknir. Vegna manneklu eru aðeins 17 pláss af 45 í notkun á sjúkrahúsinu Vogi.
Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir forstjóri SÁÁ segir í skriflegu svari til fréttastofu að ráðstöfunin sé tímabundin og stefnt sé að því að taka við fleiri sjúklingum smám saman á næstu vikum.
Margrét Petrína Hallsdóttir er læknir og stjórnarmaður í félagasamtökunum Það er von. Þau aðstoða fólk sem glímir við fíknivanda og aðstandendur þeirra.
Hún segir líklegt að fækkun innlagna hjá Vogi auki álag á læknavakt og bráðamóttöku. Þá sé sennilegt að fólk viti einfaldlega ekki hvert það eigi að leita til að komast í afeitrun. „Sem er náttúrlega það sem er oft þörfin þegar fólk er að byrja að hætta að nota þau vímuefni sem það er að nota.“
Þarf að sinna fólki sem gæti fengið lífshættuleg fráhvörf
Margrét segir færri innlagnir á Vog sérstaklega alvarlegar þegar fólk er útsett fyrir lífshættulegum fráhvörfum.
„Þá verðum við að geta sinnt þeirri afeitrun eða þeirri meðferð þar sem líf þessara einstaklinga liggur við.“
Hún segir að sé fólk í samvinnu við heilbrigðisstarfsmenn eða undir þéttu eftirliti í niðurtröppun vímuefna sé hægt að leita til fíkniráðgjafa. Það sé einnig hægt í tilfelli vímuefna sem hafi í för með sér óþægileg eða erfið fráhvarfseinkenni sem ekki eru hættuleg.
Margrét segir að þá sé hægt að leita hjálpar og ráða hjá félagasamtökum, til dæmis Það er von. Sjálf hvetur hún fólk til að hika ekki við að hafa samband við slík samtök.
„Það er alltaf hægt að fá viðtöl og stuðning líka ef maður er aðstandandi. Það er um að gera að hafa samband og ræða þetta – vera hreinskilinn um sína neyslu og þá fær maður oftast bestu aðstoðina.“