Tveir karlmenn báru vitni um það í Héraðsdómi Reykjaness í dag að Íris Helga Jónatansdóttir hefði beðið þá að lemja einn brotaþolann í máli hennar. Þriðji dagur aðalmeðferðar fór fram í dag, en Íris Helga er ákærð fyrir umsáturseinelti, ærumeiðandi aðdróttanir, skjalafals, rangar sakargiftir og barnaverndarlagabrot. Hún neitar sök.
Brotaþolinn sem um ræðir bar vitni í gær og lýsti þá meðal annars því að saur hefði verið makaður á hurðarhúna á heimili hans og á bíl hans.
Héraðsdómur Reykjaness: Íris Helga neitar nær öllum ákæruliðum og segist sjálf hafa verið áreitt
„Hún sendi mér snap“
Annar mannanna sagðist tengjast Írisi Helgu í gegnum konu sína, sem hefði unnið með henni. Hann sagði hana hafa sent sér skilaboð um að „lemja manninn, láta lemja hann eða eitthvað þess háttar“, samkvæmt frásögn Vísis. Í fyrstu hefði hann tekið vel í það.
„Ég er vinur vina minna og hjálpa til ef þarf. Þegar ég sé síðan hvernig hlutirnir eru í raun þá er ég ekki sammála því og hætti að svara skilaboðum,“ sagði maðurinn fyrir dómi.
Hinn maðurinn sagði konu sína og Írisi Helgu vera æskuvinkonur. „Hún sendi mér snap þar sem hún bað mig að lemja [brotaþola]. Hún sendi vídeó af húsinu hans þar sem hún bað mig að lemja hann,“ sagði hann. Samkvæmt mbl.is fylgdi heimilisfang mannsins með.
Hann sagðist hafa neitað. Síðar hefðu hann og kona hans sent Írisi Helgu skilaboð, boðið henni aðstoð og hvatt hana til að leita sér hjálpar. Eftir það hefðu ekki komið fleiri skilaboð.
Helga Vala Helgadóttir, verjandi Írisar Helgu, spurði manninn hvort skilaboðin hefðu getað verið grín. Hann sagðist ekki hafa tekið þeim þannig, því skilaboðin hefðu verið fleiri en ein.
Vinkonur slitu vinskapnum
Tvær fyrrverandi vinkonur Írisar Helgu báru vitni og sögðust báðar hafa slitið vinskapnum árið 2022 vegna lyga hennar.
Önnur þeirra sagðist hafa farið á rúntinn með Írisi Helgu þar sem ekið var fram hjá húsi brotaþolans. Hún sagðist ekki vita hvert erindið hefði verið. Hún sagðist líka hafa séð Írisi Helgu skipta á milli ólíkra aðganga á samfélagsmiðlum í símanum sínum.
Kona sem var í þriggja mánaða sambandi við brotaþolann bar einnig vitni. Hún sagði Írisi Helgu hafa haft samband við sig og spurt út í samskipti hennar við manninn.
Dóttirin bar vitni að eigin vali
Fyrst í morgun bar unglingsdóttir Írisar Helgu vitni. Henni var það ekki skylt vegna tengsla við sakborning, en hún kaus að segja frá sinni hlið. Hún sagði móður sína aldrei hafa beðið sig um að gera neitt óeðlilegt.
Dóttirin sagði að bróðir sambýliskonu brotaþola hefði ráðist inn á heimili þeirra mæðgna og hótað að drepa þær. Lögregla hefði verið kölluð til.
Barnsfaðir Írisar Helgu var kallaður sem vitni í gegnum fjarfundabúnað en neitaði að gefa skýrslu. Honum var það ekki skylt.
Alls voru sex dagar teknir frá fyrir aðalmeðferðina.