Fyrst til að bera vitni eftir hádegið var fyrrverandi eiginkona brotaþolans sem var á meðal þeirra sem báru vitni í gær.
Sagði hann þá frá umfangsmiklu umsáturseinelti og sakaði hann Írisi meðal annars um að hafa látið maka saur á hurðarhúna heimilis síns en annar sakborningur í málinu játaði þann verknað í gær.
Konan sem starfaði með Írisi Helgu í grunnskóla í Reykjanesbæ sagði að Íris hefði talað mikið um brotaþolann og fyrrverandi eiginmann sinn á kaffistofu skólans.
Hafi hún sýnt samstarfsfólki myndir og sagt hvað þau væru að gera saman, en á þeim tíma áttu brotaþoli og Íris í sambandi. Sagðist konan hafa gert sitt besta til að reyna að hundsa Írisi Helgu og það sem hún hafði að segja.
Sagði konuna hafa alið upp góðan eiginmann
Einnig hafi þó komið fyrir að Íris Helga hafi mætt inn í kennslustofu til hennar til að ræða um brotaþola þar sem Íris Helga hafi spurt hana hvernig maður hann væri.
„Hún vildi meina að hann væri með hana á heilanum,“ sagði konan og kvaðst ekki viss um hvort þetta hafi verið á þeim tíma sem Íris Helga og brotaþoli voru í sambandi eða nýhætt saman.
Þá hafi hún heyrt frá samstarfsfólki sögur sem Íris Helga hafi verið að segja, meðal annars um að hún væri með krabbamein.
„Það var kona sem grét með henni yfir öllu þessu sem væri að gerast, krabbameini, lyfjameðferð og að hún væri að missa hárið.“
Sjálf segist konan hafa fengið ein skrýtin skilaboð frá reikningi undir nafninu „Ásthildur María“.
„Eitthvað um að við værum limsystur og að ég hefði alið upp góðan eiginmann.“
„Ég þekki hana alveg, ég stend við mína frásögn“
Næst í röðinni til að bera vitni var kona búsett í Reykjanesbæ sem sagðist hafa orðið vitni að því þegar sírópi var sprautað á póstkassa sambýliskonu áðurnefnds brotaþola. Íris var spurð út í það atvik við skýrslutöku á mánudag og neitaði hún að hafa komið nálægt þeim gjörningi.
Konan sagði að hún hefði séð stúlku fyrir utan hús sitt og spurt hvort hún gæti aðstoðað hana. Þá hefði stúlkan sagst vera að fara að hitta sambýliskonu brotaþolans.
„Ég fer inn og stuttu seinna fer ég aftur út og þá stendur hún og er að sprauta sírópi í póstkassann,“ segir konan og bætir við að stúlkan hafi staðið á planinu ásamt móður sinni.
„Hún er hérna í salnum,“ sagði konan aðspurð hver móðirin væri og gerði viðstöddum ljóst að hún ætti við Írisi Helgu.
Þegar Helga Vala Helgadóttir verjandi spurði konuna út í atvikið vildi hún fá á hreint hvort hún hefði séð stúlkuna sprauta sírópinu.
„Ég sá að það var búið að sprauta, ég kem út og þá er hún að hlaupa í burtu hlæjandi með brúsa í hendinni.“
Þá sagðist konan hafa þekkt Írisi Helgu en verjandi vísaði í skýrslutöku hjá lögreglu þar sem konan sagðist hafa séð bakhluta konunnar.
„Ég þekki hana alveg, ég stend við mína frásögn.“
„Það kemur enginn annar til greina“
Sölvi Guðmundsson er einn þeirra sem kært hefur Írisi fyrir umsáturseinelti en Sölvi og dóttir hans hafa bæði sagt sína sögu fyrir dómi.
Barnsmóðir Sölva bar vitni fyrir dóminum í dag en konan lagði fram kæru fyrir hönd dóttur sinnar á síðasta ári og sagði Írisi hafa sent skilaboð á hana, búið til gerviaðganga á Facebook í hennar nafni og sent falskar ásakanir á tvo framhaldsskóla sem dóttirin hafi sótt.
Málið hafi haft mikil áhrif á dóttur hennar.
„Hún var rosalega hrædd, hringdi í mig úr skólanum og var hrædd um að Íris væri fyrir utan. Þegar ég var að skutla henni til pabba hennar, þótt hún væri tvo metra frá innganginum, þá var hún hrædd um að hún væri að fela sig einhvers staðar,“ bætir hún við og bætir við að stúlkan hafi þurft að leita sálfræðiaðstoðar vegna málsins.
Þá nefnir hún einnig atvik þegar Íris Helga hafi birst fyrir utan þar sem stúlkan var stödd á Breiðdalsvík. Þar bjó hún hjá pabba sínum yfir sumarið og stundaði vinnu.
„Hún sagði „hvað á ég að gera?“ og var gífurlega hrædd,“ sagði konan.
Einnig sagði konan að Íris hefði sent sér skilaboð í gegnum gerviaðgang en síðan blokkað hana þegar hún hefði ekki fengið viðbrögðin sem hún vildi.
Konan sagði dóttur sína hrædda enn þann dag í dag, ekki þegar hún væri með henni heldur þegar hún væri annars staðar.
„Þegar hún var í skólanum var hún hrædd, eða heima hjá vini sínum því Íris hafði líka sent honum skilaboð.“
Þá segist hún viss um að Íris hafi verið á bak við skilaboðin sem voru send:
„Það kemur enginn annar til greina,“ og bætir við að dóttir sín hafi aldrei átt í vandræðum í samskiptum við neina aðra og ekki í skólanum.
Birti barnaverndartilkynningu í nafni annarar konu
Næst var komið að konu sem starfað hafði sem námsráðgjafi í framhaldsskóla sem dóttir Sölva stundaði nám í. Greindi hún frá því þegar hún hafi fengið símtal um barnaverndartilkynningu sem send var í hennar nafni. Hún hafi ekkert kannast við að hafa sent slíka tilkynningu.
Þá var hún spurð um tölvupósta sem sendir voru á skólann um dótturina og foreldra hennar. Sagði konan að í þeim hefðu verið upplýsingar um að Sölvi hefði fengið dóttur sína til að senda hana með fíkniefni í bifreið í skólann.
„Pósturinn var sendur á mig og skólameistarann. Það fylgdu upplýsingar um netfang og símanúmer en því var aldrei svarað. Það var margt óljóst. Ég get ekki svarað fyrir hvað var gert en ég veit að það var ítrekað reynt að hafa samband án árangurs.“