Landslagið er gjörbreytt í bandarískum stjórnmálum eftir þingkosningarnar í gær. Demókratar hafa tryggt sér meirihluta í báðum þingdeildum og Donald Trump Bandaríkjaforseti segist geta unnið með þeim. Hann svaraði spurningum fjölmiðla fyrr í kvöld.
Trump hafði beðið kjósendur að láta eins og nafn hans væri á kjörseðlinum. Hann vill þó ekki axla ábyrgð á niðurstöðunni en sagði frambjóðendur eigin flokks ekki hafa verið nógu spennandi. Nú á sjöunda tímanum hélt hann blaðamannafund um nýja veislusalinn í Hvíta húsinu en svaraði þó að lokum spurningum um kosningarnar.
„Hefði ég verið á kjörseðlinum hefðum við unnið. Þið sáuð allt fólkið, í þúsundatali, á kosningafundunum, og hefði nafnið mitt verið þarna hefðum við unnið,“ sagði Trump þegar hann var spurður hvort hann sæi eftir einhverju.
Seint í gær óskaði Trump Demókrötum til hamingju og sagðist vel geta unnið með þeim. „Okkur demókrötunum semur áreiðanlega velnema þeir vilji spilla fyrir, en þá hef ég neitunarvaldið. Ef okkur líka ekki þeirra störf. En þeir hringdu. Þeir vilja ræða málin, það er allt í lagi,“ sagði Trump í kvöld.
Alls ekki hræddur við ákæru
Hann sagði alls ekki óttast að verða ákærður til embættismissis. Nokkuð sem Demókratar gætu ákveðið að gera nú þegar þeir hafa náð yfirráðum í fulltrúadeildinni. „Ákæra yrði ástæðulaus, fyrir hvað? Að stýra farsælu ríki? Landið okkar er farsælla núna en nokkurn tíma í sögunni,“ sagði forsetinn.
Í fulltrúadeildinni eru 435 sæti. Fyrir kosningarnar í gær höfðu Repúblikanar höfðu 218, sem er minnsti mögulegi meirihluti, og Demókratar 214 - tvö sæti voru auð og einn þingmaður óháður óháður. Í öldungadeildinni höfðu Repúblikanar 53 sæti og Demókratar 47.
Enn er verið að telja atkvæði en þegar þetta er skrifað hafa Demókratar tryggt sér að minnsta kosti 237 sæti í fulltrúadeildinni, sem er nokkuð þægilegur meirihluti. Repúblikanar eru komnir með 139.
Í öldungadeildinni var kosið um 35 sæti af 100 og enn er verið að telja í tveimur ríkjum, Alaska og Mississippi. Demókratar hafa tryggt sér 20 sæti af þessum 35og þar með meirihluta eða alls 54 þingmenn. Repúblikanar hafa tryggt sér 13 og eru með 44 sæti samtals.