Í tíu ár hafði eiginmaður Gisèle Pelicot byrlað henni lyf, nauðgað henni og boðið fjölda ókunnugra manna inn á heimili þeirra til að misnota hana á meðan hann tók árásirnar upp á myndband. Þegar lögreglan komst á snoðir um málið fyrir tilviljun rataði það í fréttir um allan heim. Í réttarhöldunum sem fylgdu í kjölfarið krafðist Pelicot þess að þau yrðu opin öllum. Allir áttu að sjá hverjir glæpamennirnir voru, hvað þeir höfðu gert henni og að hún neitaði að bera skömmina.
Ofbeldismálið sem vakti heimsathygli: „ Mér var óskiljanlegt hvað þeir voru ungir, þótti það enn sárara. … Þessi kona sem lá þarna hreyfingarlaus og þeir níddust á“