Héraðsdómur Reykjavíkur kvað upp dóm þess efnis í dag.
Í bílskúrsrými fann lögregla rúmlega 4,4 kíló af marijúana, 1,8 kíló af kannabisplöntum, 465 grömm af kannabisstönglum og 66 grömm af kannabislaufum. Í íbúð mannsins fundust 655 grömm af marijúana, 111 grömm af kannabislaufum, 470 grömm af kannabisplöntum og 265 grömm af kannabisstönglum. Einnig fundust þar 0,66 grömm af ketamíni, 0,36 grömm af kókaíni og 1,50 stykki af Alprazolam KRKA, 3 stykki af
Oxycontin og 2 stykki af Suboxone.
Þá var hann einnig ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa aflað sér og geymt ávinning af sölu og dreifingu ótiltekins magns ávana- og fíkniefna, samtals að fjárhæð 1.753.500 króna.
Þetta mun hann hafa geymt í reiðufé í stigahúsi og á skrifborði í íbúð sinni, en lögregla fann og lagði hald á umrætt reiðufé við leit í íbúðinni.
Jafnframt var hann ákærður fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot með því að hafa, mánudaginn 25. nóvember 2024, ekið bíl sviptur ökurétti, undir áhrifum áfengis og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna suður Snorrabraut í Reykjavík. Í blóði mældist vínandamagn 0,72 prómíl og oxýkódon 920 ng/ml.
Maðurinn játaði brotin skýlaust fyrir dómi. Á sakavottorði kom fram að hann hefði áður gerst sekur um að aka sviptur ökuréttindum auk þess sem hann hefði verið ófær um að stýra bifreiðinni. Einnig hefði hann áður verið sektaður fyrir ölvunarakstur.
Við ákvörðun refsingar hafði dómari hliðsjón af því að maðurinn hefði hreinan sakaferil að baki að undanskildum fyrrgreindum lögreglusáttum, en einnig hafði hann hliðsjón af skýlausri játningu hans og þeim ráðstöfunum sem hann var sagður hafa gripið til í því skyni að færa líf sitt til betri vegar. Þá var tekið fram að 19 mánuðir liðu frá lokum rannsóknar og þar til ákæra var gefin út án þess að honum yrði um dráttinn kennt.
Þess vegna var maðurinn dæmdur í sex mánaða fangelsi en refsingin skilorðsbundin til 5 mánaða. Hann var einnig sviptur ökurétti ævilangt.
Fallist var á upptökukröfur lögreglu er vörðuðu reiðuféð og fíkniefnin.