Musk varði að minnsta kosti 440 milljónum dala, sem samsvarar tæpum 54 milljörðum króna, til stuðnings frambjóðenda Repúblikanaflokksins. Þetta gerir hann að þeim manni sem hefur varið mestum pening í kosningar vestanhafs.
Sjá einnig: Styður Repúblikana með tugum milljarða
Samkvæmt Forbes er Musk metinn á 868,8 milljarða dala, þegar þetta er skrifað.
Mestu varði Musk í að styðja Ken Paxton í baráttu hans gegn James Talarico um annað öldungadeildarþingsæti Texas, þar sem Musk rekur fyrirtæki sín Tesla og SpaceX. Þar er um að ræða rúmlega 150 milljónir dala, samkvæmt frétt Wall Street Journal.
Þá tísti Musk ítrekað um Talarico þar sem hann fór hörðum orðum um þingmanninn verðandi.
Stuðningurinn virðist litlum árangri hafa skilað en hann fór að miklu leyti í neikvæðar auglýsingar um Talarcio. Demókratinn bar sigur úr býtum gegn Paxton með þó nokkrum yfirburðum.
Í sigurræðu sinni sagði Talarcio að „allir peningar heimsins“ dygðu ekki gegn íbúum Texas. Þar nefndi hann Musk ekki á nafn en í kosningabaráttunni sjálfri nefndi hann Musk þó nokkrum sinnum og sagði meðal annars að auðjöfurinn ætlaði sér að kaupa öldungadeildarþingsæti.
We just took back Texas. https://t.co/xewCGiQ6pc
— James Talarico (@jamestalarico) November 4, 2026
„Elon Musk vill landsvæði okkar, hann vill vatn okkar, hann vill skattfé okkar og hann vill sinn eigin öldungadeildarþingmann,“ sagði Talarico nýlega á kosningafundi.
Það sem meira er, bar Demókrati sigur úr býtum í baráttunni um embætti ríkisstjóra Texas og Demókrati var einnig kjörinn dómsmálaráðherra ríkisins. Þá þykja Demókratar líklegir til að ná meirihluta í neðri deild ríkisiþings Texas en Repúblikanar munu líklega halda efri deildinni.
Nýr ríkisstjóri ætlar í hart
Meðal þeirra áhrifa sem þessar niðurstöður geta haft á Musk er að umsóknir sem tengjast gagnaverum sem hann vill reisa gætu tekið lengri tíma að vera samþykktar eða þeim gæti verið hafnað, samkvæmt sérfræðingum sem blaðamenn Reuters ræddu við.
Þá hefur Gina Hnojosa, verðandi ríkisstjóri Texas, höfðað mál til að koma höndum yfir skilaboð á milli Musks og Greg Abbott, fráfarandi ríkisstjóra. Hún hefur sakað Abbot um að svíkja íbúa Texas og veita Musk of hagstæða samninga á undanförnum árum.
Hún hefur einnig kallað eftir tímabundinni framkvæmdastöðvun á gagnaverum í ríkinu.
Musk grínaðist í gær með það að áætlanir hans um að koma gagnaverum á braut um jörðu litu sérstaklega vel út þessa dagana.
Demókratar stefna á rannsóknir
Það er einnig á alríkissviðinu sem Musk stendur frammi fyrir vandræðum frá Demókrötum.
Leiðtogar og þingmenn Demókrataflokksins hafa gefið til kynna að þeir hafi áhuga á að kafa í saumana á aðkomu Musks að ríkisstjórn Trumps og ýmsum ákvörðunum sem hafa verið teknar í Hvíta húsinu. Demókratar vilja sérstaklega taka til skoðunar niðurskurðarrassíuna í upphafi kjörtímabils Trumps.
Þá var stofnuð eins konar stofnun sem kallast DOGE, eða Department of government efficiency, en nafnið er tilvísun í rafmynt sem Musk kom að. Í gegnum þessa stofnun hafði Musk það hlutverk að fara í umfangsmikinn niðurskurð en þau störf Musks eru mjög svo umdeild.
Demókratar hafa einnig nefnt að kafa í saumana á því hvernig SpaceX setti takmarkanir á notkun Úkraínumanna á Starlink og Starshield móttökustöðvum í stríði þeirra gegn Rússum. Takmarkanirnar komu verulega niður á vörnum Úkraínumanna gegn rússneskum sjálfsprengidrónum.
Sjá einnig: Musk segi ósatt um Starlink
Robert Garcia, þingmaður Demókrataflokksins og væntanlegur formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fulltrúadeildarinnar, sendi í gær út yfirlýsingu. Í inngangi hennar segir að Garcia hafi heitið því að fara í hart gegn Trump og fjölskyldu hans og rannsaka meinta spillingu, meðhöndlun Epstein-skjalanna svokölluðu og annað.
Skilaboðin frá Garcia sjálfum voru stutt.
„Ráðið lögfræðing.“
Til í að náða Musk
Musk gerir sér grein fyrir því hvað er í vændum. Í aðdraganda kosninganna birti hann til að mynda færslu á X, hans eigin samfélagsmiðli, þar sem hann sagði að þeir sem hæfu slag við sig ættu að vita að hann myndi komast að því hverjir toguðu í spotta þeirra og vaða í þá.
Fjölmiðlar vestanhafs segja að Musk hafi í dag eytt einhverjum af tístum sínum þar sem hann kallaði eftir því að kjósendur styddu Repúblikanaflokkinn.
Í nýlegu viðtali gaf Trump til kynna að hann væri tilbúinn til að veita starfsmönnum sínum, ráðgjöfum og bandamönnum, náðanir til að verja þá gegn rannsóknum og mögulegum ákærum. Hann nefndi Musk sérstaklega og sagði að Demókratar vildu handtaka hann og leggja hald á verksmiðjur auðjöfursins.
Stormasöm vinátta
Musk var lengst af ekki talinn pólitískur. Það virðist hafa breyst á Covid-árunum svokölluðu. Þá fannst Musk Demókratar og þá sérstaklega ráðamenn í Kaliforníu koma illa fram við sig. Hann flutti höfuðstöðvar fyrirtækja sinna til Texas og gekk síðar til liðs við Trump.
Í kosningabaráttunni fyrir forsetakosningarnar 2024 studdi auðjöfurinn Trump dyggilega og hélt sína eigin kosningafundi í Pennsylvaníu, sem var mjög mikilvægt sveifluríki í kosningunum.
Þegar Trump varð forseti tók hann svo að sér hlutverk í ríkisstjórn Trumps og var tíður gestur í Hvíta húsinu.
Hann fékk það verkefni að fara í umfangsmikinn niðurskurð hjá hinu opinbera en framkvæmd þessa niðurskurðar er mjög umdeild og einnig er deilt um hvort hann hafi skilað einhverjum árangri af viti.
Innan skamms voru Trump og Musk farnir að rífast opinberlega, sem endaði með eins konar útlegð Musks. Hann vingaðist þó aftur við forsetann og var, eins og áður segir, dyggur stuðningsmaður Repúblikanaflokksins fyrir kosningarnar.