Í september var tilkynnt að lokað yrði fyrir vatn og rafmagn í hjólhýsabyggðinni við Sævarhöfða í byrjun nóvember og á mánudaginn var því fylgt eftir. Deilur hafa lengi staðið um byggðina.
„Ég er bara ekki að skilja við hvað þeir eru hræddir“
Bergþóra Pálsdóttir talskona íbúanna segir þau upplifa að þau séu hvergi velkomin. Hún segir hópinn hafa barist fyrir því að fá aðra lóð. Þau hafi sótt um að fá pláss á lóðinni þar sem Sorpa var áður á Sævarhöfða en fengið synjun.
„Ég bara er ekki alveg að skilja við hvað þeir eru hræddir, ég meina þetta er bara alls staðar í heiminum, líti þau bara í kringum sig. Ég ætla að vona að Reykjavíkurborg sjái sóma sinn í því að setja rafmagnið á hjá fólkinu, ég meina, það er korter í jól.“
Ekki verið boðin önnur úrræði
Bergþóra segir tólf hjólhýsi vera í byggðinni á Sævarhöfða. Flestir íbúar séu öryrkjar og eldri borgarar og fjárráð leyfi ekki leigu á almennum markaði. Fólkinu hafi ekki verið boðin önnur úrræði.
„Einar segir það í fréttum að það hafi einhver komið hér og boðið fram aðstoð og talað við okkur, það hefur ekkert okkar orðið vart við þann mann. Það hefur enginn komið til mín til dæmis eða neitt. Og 2019 þá vorum við í Laugardalnum, þá sótti ég um félagslega íbúð hjá bænum, ég hef ekki enn heyrt í þeim.“
Bergþóra segir flest ganga fyrir rafmagni í hjólhýsunum, svo sem ísskápurinn, sjónvarpið, kaffivélin, alde-hitakerfið og rafmagnsofnar. Sumir íbúar séu með gasbúnað sem þeir geti notað í neyð en ekki allir. Rafmagnsleysið ógni bæði heilsu og öryggi íbúa.
„Það eru sjúklingar hérna, það eru þrír krabbameinssjúklingar og hvað er eðlilegt við það að taka rafmagnið af fólki. Þú finnur nú hvað er kalt hérna inni núna.“
Kvíðir fyrir vetrinum
Íbúi, sem vill ekki láta nafns síns getið, segir borgina ekki hafa boðið sér önnur úrræði. Leiga á almennum markaði sé útilokuð því hann hafi ekki efni á henni.
„Ég var í sumar í kransæðahjáveitu þannig að þetta er mjög erfitt. Það er kalt, ég er ekki með gas til að hita neitt og það eina sem ég hef haft er rafmagnsofn þannig að núna ef það fer að kólna meira þá verður bara frost. Nóttin í nótt var köld, mjög svo, en sem betur fer var ég með teppi og það var góður hiti í plús en ég kvíði fyrir vetrinum.“
Ekki fyrirhugað að koma á fót öðru svæði fyrir hjólhýsagarð
Einar Þorsteinsson borgarfulltrúi sagði í skriflegu svari til fréttastofu að borgin finni sig knúna til að loka byggðinni meðal annars vegna athugasemda frá slökkviliði um brunavarnir. Ekki sé fyrirhugað að koma á fót öðru svæði fyrir hjólhýsagarð með þeim tilkostnaði sem því fylgi.