Eftir að Björg Jóhannsdóttir og Orri Bergmann Valtýsson misstu dóttur sína, Júlíönu Rut, skömmu eftir fæðingu fyrir rúmum tveimur árum síðan hafa þau ítrekað fengið bréf og áminningar sem ýfa upp gömul sár. Meðal annars áminningar um tannlæknatíma og boð um að kaupa námskeið eða bóka krílatíma.Björg segir skrýtið að kerfin tali ekki saman og að syrgjandi foreldrar séu ítrekað minntir á missi sinn, jafn vel löngu seinna þegar þeir búast ekki við því. Kallar hún eftir úrbótum og samhæfingu kerfa til þess að koma í veg fyrir þetta.
Fá skilaboð um tannlæknatíma og krílamorgna þó að dóttirin sé látin – „Það er verið að slá fólk niður aftur og aftur“