Konan vissi ekki af því að eiginmaður hennar væri að brjóta á henni eða að hjálpa öðrum að nauðga henni. Maðurinn deildi svo myndum og myndböndum af brotunum með öðrum mönnum. Í heildina er hann sagður hafa safnað rúmlega milljón myndum og myndböndum í gegnum árin, sem hann deildi með öðrum á netinu, samkvæmt frétt Sky News.
Maðurinn hefur ekki verið nafngreindur til að vernda eiginkonu hans. Hinir níu, auk fjögurra til viðbótar sem ekki er verið að rétta yfir núna þar sem þeir hafa játað, voru allir nafngreindir af lögreglunni á stór-Manchester-svæðinu í sumar. Þá var einnig farið yfir ákærur hvers og eins.
Í september sagði lögreglan svo frá því að maðurinn hefði játað brot sín. Hann hefði gengist við því að hafa í meira en tuttugu ár byrlað konu sinni ólyfjan og nauðgað henni. Í heildina gekkst hann við sextíu ákærum.
Eins og áður segir er verið að rétta yfir níu mönnum sem eiginmaðurinn gerði kleift að nauðga konunni. Þeim fyrsta bauð hann í heimsókn árið 2023. Allir mennirnir neita sök, samkvæmt Sky.
Málinu þykir svipa til máls hinnar frönsku Gisèle Pelicot. Eiginmaður hennar og 53 aðrir menn nauðguðu henni ítrekað yfir margra ára tímabil.
Sendi mönnnum myndir og myndbönd
Eiginmaðurinn er sagður hafa haft samskipti við einhverja mannanna gegnum vef sem kallast fabswingers.com, þar sem menn komu saman til að ræða áhuga sinn á því að hafa mök við sofandi konur.
Þar birti hann myndir og myndbönd af sér brjóta á konunni og bauð síðar öðrum að brjóta á henni. Eins og áður segir hefur eiginmaðurinn játað og stendur til að hann muni bera vitni gegn mönnunum.
Eitt myndband var sýnt í dómsal í dag, þar sem heyra mátti konuna hrjóta. Saksóknarar sögðu hana ekki hafa haft hugmynd um brotin. Þá sýndu þeir myndir af hjónunum saman, þar sem þau voru skælbrosandi.
„Þau eru með hendurnar utan um hvort annað og brosandi. Þau virðast venjulegt, hamingjusamt par,“ sagði Louise Oakley, einn saksóknaranna, í dómsal í dag, samkvæmt BBC.
„Sumum kann að þykja að þessi mynd sýni best siðleysi hans. Hann getur litið svona út eina mínútuna og þá næstu, orðið skrímslið sem við höfum séð margsinnis, aftur og aftur.“
Í einu tilfelli komu tveir menn og brutu á konunni sama kvöldið.
Réttarhöldin munu halda áfram í vikunni en ekki hefur komið fram hvernig upp komst um brotin. Það hefur heldur ekki komið fram í yfirlýsingum lögreglunnar.
Fjórir hafa játað
Mennirnir sem verið er að rétta yfir eru listaðir hér að neðan. Þeir hafa gengist við einhverjum ákærum en neitað öðrum. Sumir þeirra hafa neitað öllum ákærum.
Daniel Rayner, 42 ára, sjálfstætt starfandi bifvélavirki, er ákærður fyrir samsæri um nauðgun, samsæri um kynferðislega misnotkun og samsæri um byrlun í þeim tilgangi að fremja kynferðisbrot. Hann neitar sök í öllum ákæruliðum.
Robert Stewart, 70 ára, eftirlaunaþegi frá Stockport, er ákærður fyrir nauðgun, samsæri um nauðgun og samsæri um byrlun í þeim tilgangi að fremja brot. Hann neitar sök í öllum ákæruliðum.
Richard Townsend, 38 ára, blikksmiður, er ákærður fyrir samsæri um kynferðislega misnotkun og fyrir kynferðislega misnotkun.
Philip Wild, 59 ára, leigubílstjóri, er ákærður fyrir samsæri um nauðgun, samsæri um kynferðislega misnotkun, tilraun til nauðgunar og kynferðislega misnotkun. Hann neitar sök.
David Graves, 60 ára, starfsmaður hjá iðnaðarþrifafyrirtæki, er ákærður fyrir samsæri um nauðgun, samsæri um kynferðislega misnotkun og samsæri um byrlun í þeim tilgangi að fremja kynferðisbrot. Hann neitar sök í öllum ákæruliðum.
Mohammed Sabir, 28 ára, starfsmaður ráðningarfyrirtækis, er ákærður fyrir samsæri um nauðgun, samsæri um kynferðislega misnotkun og nauðgun.
Alan Keelan, 42 ára, starfsmaður ræstifyrirtækis, er ákærður fyrir samsæri um nauðgun og nauðgun.
Jonathan Kirk, 43 ára, sjúkraflutningamaður, er ákærður fyrir nauðgun, samsæri um nauðgun og samsæri um kynferðislega misnotkun.
Jordan Wallace, 31 árs, starfsmaður fyrirtækis sem selur byggingarefni, er ákærður fyrir samsæri um nauðgun, nauðgun og tilraun til nauðgunar.
Fjórir menn hafa játað og verður dómur yfir þeim kveðinn upp síðar. Þeir eru:
Keith Fotheringham, 59 ára, hefur játað sök í samsæri um nauðgun, samsæri um kynferðislega misnotkun, samsæri um byrlun í þeim tilgangi að fremja kynferðisbrot og kynferðislega misnotkun.
Karl Lindsay, 56 ára, hefur játað samsæri um nauðgun, samsæri um kynferðislega misnotkun og samsæri um byrlun í þeim tilgangi að fremja kynferðisbrot.
Sean Peers, 38 ára, hefur gengist við ákærum fyrir kynferðislega misnotkun og samsæri um kynferðislega misnotkun.
Graham Brougham, 74 ára, hefur gengist við ákærum fyrir samsæri um nauðgun, samsæri um kynferðislega misnotkun og nauðgun.