Svanhildur Þorvaldsdóttir, dósent í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, segir að þrátt fyrir að skoðanakannanir hafi verið Demókrötum í vil komi á óvart hve stór sigur flokksins var. Þingkosningar voru haldnar í Bandaríkjunum í gær og biðu Repúblikanar, flokkur Bandaríkjaforseta, ósigur.
Svanhildur telur að nú reyni verulega á samningatækni Bandaríkjaforseta en tvö ár eru eftir af forsetatíð hans.
„Tækni sem hann er mjög stoltur af, hann er náttúrulega með demókrata í báðum deildum þingsins sem þýðir að við munum sjá stóraukið eftirlit með framkvæmdarvaldinu og hvað hann er að gera.“
Trump hefur bent á að hann hafi neitunarvald við lagasetningu og segir því Svanhildur að ekki megi vænta neinna stórra breytinga vegna þessa en að þó megi búast við mun virkara þingi sem muni veita forseta aðhald.
Markar upphafið að baráttunni um forsetaembættið
Bandaríkjaforseti virtist taka niðurstöðum kosninganna með meiri ró en vænta mátti. Svanhildur telur það meðal annars skýrast af því hve afgerandi sigurinn var.
„Það er mjög erfitt fyrir hann að koma fram og segjast ekki virða þessar kosningar og ætla að fara í dómsmál og annað þegar það er mjög ólíklegt til þess að skila árangri.“
Úrslit þessara kosninga marka tvímælalaust upphafið að kosningabaráttunni um forsetaembættið segir Svanhildur.
„Við sáum það nú bara strax þegar varaforseti Bandaríkjanna fer að kenna stríðinu í Íran um þessa niðurstöðu og er þá aðeins byrjaður í orði að færa sig fjær stefnumálum forsetans.“