Karl Wernersson boðaði til fundar í dag þar sem hann fór yfir síðustu 17 ár í sínu lífi og reynslu sína af íslensku réttarkerfi. Karl var fastagestur í dómsölum eftir hrun eftir milljarða gjaldþrot Milestone. Eftir að hann leitaði til Mannréttindadómstóls Evrópu var fangelsisdómur, sem hann hlaut meðal annars fyrir umboðssvik, ómerktur.
Milljarða skaðabótadómur í máli sem þrotabú Milestone höfðaði gegn honum stóð hins vegar óhaggaður og Karl var lýstur gjaldþrota – sem hann er enn, en beiðni hans um endurupptöku var hafnað.
Málið er flókið og hefur staðið yfir árum saman en verður reifað hér í stuttu máli.
Taldir hafa fjármagnað kaup á hlut Ingunnar með ólögmætum hætti
Karl var umsvifamikill fjárfestir á árunum fyrir hrun í gegnum félagið Milestone. Það átti hann fyrst um sinn með systkinum sínum, Ingunni og Steingrími. Árið 2006 hófu bræðurnir það ferli að kaupa systur sína út úr félaginu.
Félagið fór hins vegar illa út úr hruninu og varð gjaldþrota 2009. Árið 2013 gaf sérstakur saksóknari út ákæru á hendur bræðrunum og fyrrum forstjóra, Guðmundi Ólafssyni, fyrir umboðssvik og voru þeir meðal annars taldir hafa fjármagnað kaup á hlut Ingunnar með ólögmætum hætti.
Íslenska ríkið viðurkennir að málsmeðferðin hafi ekki verið réttlát
Allir voru þeir sýknaðir í héraði árið 2016 en Hæstiréttur snéri þeim dómi við og allir hlutu þeir fangelsisdóm. Karl var dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi og afplánaði rúma 600 daga af þeim dómi.
Fimm árum síðar, eftir að Karl og fleiri höfðu leitað til Mannréttindadómstóls Evrópu, viðurkenndi íslenska ríkið að þeir hefðu ekki hlotið réttláta málsmeðferð og refsidómnum hnekkt.
Þó stóð áfram milljarða skaðabótadómur og Karl var lýstur gjaldþrota – sem hann er enn. Karl fór fram á endurupptöku skaðabótadómsins en því var hafnað árið 2024.
Allt hafi hrunið eftir að endurupptöku var hafnað
Karl segist hafa boðað til fundarins í dag þar sem hann sé enn, 17 árum eftir gjaldþrot Milestone, fastur í því sem hann kallar „ranga dóma“.
„Ég er að vekja athygli á þessu máli og það sem setur þetta af stað er að félagi minn Guðmundur [fyrrum forstjóri Milestone] óskaði eftir því að ríkið gerði sátt við hann líka en því var hafnað á þessu ári. Þannig það er einhver ganga eftir,“ segir hann.
Karl segist hafa haft réttmætar væntingar í kjölfar þess að íslenska ríkið gerði við hann sátt og refsidómurinn var ómerkur.
„Og mér fannst ég eiga bara eitt lítið skref eftir en svo er öllu snúið á hvolf tveimur árum síðar þegar þeir neita endurupptöku á þessum skaðabótadómi sem hvíldi eingöngu á þessum refsidómi, þá hrundi allt aftur,“ segir Karl.
Ekki að reyna að hafa áhrif á yfirstandandi dómsmál um skilasvik
Á síðasta ári var Karl ákærður fyrir að reyna að koma dýrmætum eignum undan gagnvart skiptastjóra þrotabúsins á árunum 2016-2018. Málið var þingfest síðasta sumar en ekki liggur fyrir hvenær aðalmeðferðin fer fram.
„Ég held það sé ekki rétt að ég sé að tjá mig um þessi mál, mín dómsmál, þannig að það kemur bara í ljós þegar þar að kemur hvaða varnir við höfum í því máli.“
En ertu eitthvað að reyna að hafa áhrif á það mál með þessum fundi og þessari tímasetningu?
„Alls ekki, alls ekki, enda sé ég ekki hvernig ég get gert það,“ segir Karl.
„Við erum að reyna að opna glufur. Það sem ég þarf sem þarf að ná í gegn er það að ég fái endurupptöku á mínu skaðabótamáli. Mínir félagar fái endurupptöku á sínu refsimáli og við ljúkum þessum málum,“ segir Karl.