Volodomyr Zelensky Úkraínuforseti hefur sæmt bandarísku forsetafrúna Melaniu Trump æðstu orðu Úkraínu sem veitt er konum. Greint var frá þessu í forsetatilskipun í gær.
Forsetafrúin er sæmd heiðursorðu af fyrstu gráðu sem kennd er við Olgu prinsessu fyrir sérstakt framlag hennar til mannúðaraðstoðar í Úkraínu með því að eiga frumkvæði að vopnahléinu í Oleshky í síðustu viku.
Orðan er veitt konum fyrir framlög þeirra til úkraínska ríkisins, vísinda, mennta, menningar og góðgerðarstarfa.
Býður til móttöku í Hvíta húsinu
Um 750 íbúar voru fluttir á brott frá Oleshky á meðan á vopnahléinu stóð. Breska ríkisútvarpið segir að sérstakir umboðsmenn Rússa og Úkraínumanna hafi tekið þátt í neyðaraðstoðinni og séð um flutning á íbúum. Forsetafrúin hefur boðið þeim auk háttsettra embættismanna til móttöku í Hvíta húsinu í dag.
Í tilkynningu frá Hvíta húsinu segir að þetta diplómatíska frumkvæði Melaniu Trump sé fordæmalaust af hálfu bandarískrar forsetafrúar.
Reynir að beita sér í þágu úkraínskra barna sem voru numin á brott
Frú Trump hefur ekki blandað sér mikið inn í utanríkismál á meðan eiginmaður hennar hefur verið í embætti Bandaríkjaforseta.
Forsetafrúin greindi þó frá því á síðasta ári að búið væri að taka upp samskipti við Vladimír Pútín Rússlandsforseta til að gera úkraínskum börnum sem voru numin á brott og flutt til Rússlands mögulegt að sameinast fjölskyldum sínum á ný.
Úkraínsk stjórnvöld telja að um 20.000 úkraínsk börn hafi verið numin á brott til Rússlands og Belarus frá því að innrás Rússa í Úkraínu hófst í febrúar 2022.
Þríhliða fundur í næstu viku
Fulltrúar Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna hittast í Abu Dhabi í næstu viku á fyrsta sameiginlega fundi þjóðanna síðan í febrúar. Úkraínuforseti greindi frá því í færslu á X í kvöld að hann hefði rætt við Steve Witkoff og Jared Kushner í um eina og hálfa klukkustund í dag.
Witkoff sagði á mánudag að öryggismál að stríði loknu og leiðir til að draga úr spennu milli þjóðanna verði meginefni fundarins í Abu Dhabi.