Þetta kemur fram í dómsskjölum sem fjölmiðlar vestanhafs hafa undir höndunum eftir að Jackson lagði fram kröfu fyrir dómara í Los Angeles-sýslu þann 29. október.
Jackson segir Branca ekki hafa uppfyllt ósk föður hennar heitins um að börn hans þrjú, Prince, Paris og Bigi, myndu fá tekjur úr dánarbúinu.
„Fjölskyldusjóður Michaels Jackson er ófjármagnaður,“ sagði Jackson í kröfunni.
Samkvæmt París héldu skiptastjórar sjóðsins, Branca og John McClain (sem nú er látinn), að þeir myndu leggja fram beiðni til að fjármagna sjóðinn. Engin slík beiðni hefur þó verið lögð fram. „Fimmtán árum síðar eru erfingjar Michaels enn að bíða.“
Skiptastjórinn með járntak á dánarbúinu
Paris segir að faðir hennar, sem lést árið 2009, hefði viljað að börn hans myndu byrja að fá pening úr búi hans þegar þau næðu 21 árs aldri. Þau myndu síðan fá einn þriðja af höfuðstól sjóðsins þegar þau yrðu þrítug, helming hans þegar þau yrðu 35 ára og restina þegar þau yrðu fertug.
„Í staðinn fá þau lægri upphæð sem eftirstandandi skiptastjóri ákveður og notar vald sitt til að koma í veg fyrir að þau geti séð misnotkun hans á peningunum,“ sagði í kröfunni.
Elsti sonurinn, Prince, verður þrítugur í byrjun næsta árs en París er 28 ára og Bigi 24 ára.
Skiptastjórar dánarbúsins hafa bætt lausafjárstöðu dánarbúsins með því að selja Neverland-búgarðinn árið 2020 og selja hugverkarétt á verkum popparans til Sony á 750 milljónir dala.
„Skiptastjórinn segir heildarvirði dánarbúsins vera á bilinu tvo til þrjá milljarðar dala,“ sagði París í kröfunni.
Jafnframt hélt París því fram að tilraunum hennar til að fá skerf barnanna úr sjóðnum hefði verið mætt með málarekstri, opinberum árásum og skerðingu á greiðslum til afkomendanna þriggja. Þá sagði hún að dánarbúið stæði frammi fyrir málarekstri við skattayfirvöld og að þeim loknum yrði hægt að millifæra peninga yfir í sjóð fyrir börnin.
Deilur við skattinn flæki málin
Talsmaður fyrir dánarbú Michaels Jackson sagði í viðtali við Page Six að umsjónarmenn búsins gætu ekki fjármagnað aðra sjóði á meðan að lagalegar deilur við skattayfirvöld stæðu yfir.
Skattrannsóknarstofnun Bandaríkjanna (IRS) höfðaði mál gegn dánarbúinu árið 2024 og krafðist 700 milljóna dala vegna vangreiddra skatta og sekta.
„Við náðum að tryggja úrskurð sem minnkar töluvert þá upphæð en málið hefur þó ekki enn verið útkljáð og er enn breytingum háð. Enn fremur er sú staðhæfing að skiptastjórinn hafi haldið aftur af greiðslum eða „skert“ þær algjör tilbúningur. Meira en 200 milljónir dala hafa farið til Parísar og hinna afkomendanna,“ sagði í yfirlýsingu frá talsmanni dánarbúsins.
„Dánarbúið hlakkar til þess dags þegar öll vandamál hafa verið svo hægt sé að fjármagna góðgerðarfélagið og aðrir sjóðir eins og Michael vildi.“