Leikarinn Michael Douglas virðist hafa sagt upphátt það sem margir hafa hugsað lengi ef marka má viðbrögð netheima við ummælum leikarans í spjallþættinum Graham Norton Show á dögunum. Gestir þáttarins voru, auk Douglas, leikararnir Glenn Close, Naomi Ackie og Kieran Culkin.Það barst til tals í þættinum að Glenn Close myndi hljóta heiðursverðlaun Óskarsverðlaunanna síðar í þessum mánuði. Við þessu sagði leikkonan að líklega ætlaði akademía Óskarsverðlaunanna að losa sig við samviskubit, en Close hefur átta sinnum verið tilnefnd til Óskarsverðlaunanna en aldrei hlotið þau.
Segja leikarann loksins hafa sagt það sem margir hafa hugsað lengi - „Michael Douglas er skítsama!“