„Götustelpan glöð með sínu besta fólki,“ skrifar ráðherrann í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún birtir mynd af sér ásamt fjölskyldu sinni.
Hnýtir hún þar í Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta, sem sagði hana sýna „götustelpustíl“ í umræðu um utanríkismál. Sagði hann þetta er hann brást við ummælum Þorgerðar sem sagði við fjölmiðla í dag að ráðamenn erlendis hefðu gert athugasemdir við hana um samfélagsmiðlafærslur forsetans fyrrverandi, einkum þær er varða Rússland og Úkraínu.
Þorgerður hafði áður gagnrýnt forsetann fyrrverandi vegna færslu hans á miðlinum X þar sem hann lýsti nýrri Norðurslóðastefnu Rússa sem „lykilskjali“ fyrir alla þá sem létu sig alþjóðamál eða málefni Norðurslóða varða.