Óhugnanlegar viðvaranir um yfirvofandi kjarnorkuárás bárust íbúum Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, seint á sunnudagskvöld eftir að óþekktir tölvuþrjótar réðust á neyðarviðvörunarkerfi úkraínskra yfirvalda.Í skilaboðunum var einnig varað við geislavirkri mengun, efnavopnaárás og götubardögum í höfuðborginni. Viðvaranirnar birtust í neyðarviðvörunarforriti, sem notað er um alla Úkraínu, skömmu fyrir klukkan 23 að staðartíma. Skilaboðin voru bæði á úkraínsku og ensku, en stafsetningarvillur í ensku útgáfunni vöktu grunsemdir um að brotist hefði verið inn í kerfið.
Íbúar Kænugarðs fengu viðvörun um yfirvofandi kjarnorkuárás