Gunnar Ármannsson lögmaður segir að hann hafi í störfum sínum orðið var við það viðhorf að veikindaréttur sé eins konar inneign sem starfsmenn geti gengið á eftir hentugleika, jafnvel þótt þeir séu ekki óvinnufærir vegna veikinda.Hann telur löngu tímabært að ræða þennan hugsunarhátt opinskátt og varar við því að hann geti grafið undan trausti til þeirra sem raunverulega þurfa á veikindaleyfi að halda. Gunnar varpar þessum vangaveltum fram í aðsendri grein á Vísi.
Gunnar varar við viðhorfi sem hann þekkir úr eigin störfum – „Þetta er því miður ekki ný hugsun fyrir mér“