Flókið mál er komið upp eftir að farþegi kærði þjón skemmtiferðaskips í Íslandssiglingu um nauðgun. Bresk stjórnvöld íhuga nú hvort þjónninn verður framseldur til Bermúda.Greint er frá málinu í miðlinum Trade Winds og fleirum.Málið kom upp sumarið 2025 eftir Íslandssiglingu skemmtiferðaskipsins Queen Anne til Íslands. En skipið, sem siglir undir fána Bermúda, sigldi í kringum landið og stoppaði meðal annars í Reykjavík, Akureyri og Ísafirði.
Íslandssiglingin breyttist í martröð – Krefjast framsals þjóns sem grunaður er um nauðgun