Ungverjar gerðu skjöl leynilögreglunnar frá tímum kommúnismans opin almenningi í fyrsta sinn í gær. Þar með eru nöfn og persónuupplýsingar um 60.000 manns sem leyniþjónustur kommúnista réðu til starfa orðin opinber og aðgengileg öllum.
Dagurinn sem gögnin eru gerð opinber er táknrænn fyrir ungversku þjóðina en fyrir sjötíu árum, 4. nóvember 1956, réðust Sovétríkin inn í Ungverjaland til að berja niður ungversku byltinguna.
Breska ríkisútvarpið segir að ákvörðun stjórnvalda um að gera skjölin aðgengileg hafi verið umdeild. Gagnrýnendur segja að þessi ákvörðun komi of seint, það vanti inn í skjölin og þetta muni valda óþarfa sundrung og þjáningu.
Forsætisráðherra Ungverjalands, Péter Magyar, hefur varið þessa ákvörðun stjórnvalda um að birta skjölin og gerði þetta meðal annars að einu af sínum helstu baráttumálum fyrir þingkosningarnar í apríl síðastliðnum. Þá sagði hann nauðsynlegt að birta skjölin svo hægt væri að efna loforð sem var gefið þeim sem steyptu kommúnistastjórninni af stóli árið 1989 í Ungverjalandi.
Eitt af helstu kosningaloforðum Magyars
Magyar ræddi við blaðamenn í ríkisskjalasafninu í Búdapest í gær þar sem skjölin eru geymd. Hann bað þá um að sýna virðingu og mannúð gagnvart birtingunni og skjölunum. Hann sagði að margar fjölskyldur stæðu frammi fyrir erfiðum upplýsingum sem sumar hverjar varða látna ættingja. Magyar bætti svo við að það væri ómögulegt að vinna úr áfalli án samtals og spurninga.
Margar ríkisstjórnir Ungverjalands síðustu áratugi hafa velt því fyrir sér að gera skjölin aðgengileg en á endanum fallið frá því. Frá árinu 1998 hefur þó verið hægt að sækja um aðgang að eigin gögnum og sagnfræðingar hafa geta rannsakað gögn annarra.
Mörg nöfn hafa hins vegar verið afmáð og leyniþjónustur sem á eftir komu héldu mörgum gögnum til eigin nota. Frá því að kommúnistastjórnin féll hefur upplýsingum úr gögnunum margoft verið lekið, til dæmis þegar ríkisstjórnir hafa reynt að leggja stein í götu andstæðinga sinna. Þá hefur mörgum skjölum verið eytt.
Fleiri gögn verða birt
Talið er að á milli 150-160.000 hafi verið uppljóstrarar í Ungverjalandi frá desember 1944 til febrúar 1990. Ekki gerðust þó allir uppljóstrarar af fúsum og frjálsum vilja, heldur var fólki oft hótað til þess að veita upplýsingar ellegar missa atvinnu eða námstækifæri, lyf eða jafnvel að persónulegum upplýsingum um fólkið sjálft yrði lekið.
Enn fleiri skjöl verða gerð opinber í febrúar. Þau skjöl eru sögð geyma ítarlegri upplýsingar um ráðningarferli uppljóstrara og gildi þeirra upplýsinga sem þeir öfluðu.
Hægt er að skoða og leita í skjölunum sem nú hafa verið gerð opinber á vefsíðunni Nyitott Akták.