Er þetta meðal þess sem kemur fram á vef Veðurstofu Íslands um veðurhorfur á landinu í dag. Á morgun lægir að einhverju leyti en verður áfram um átta til 13 metrar á sekúndu norðvestantil og við suðurströndina. Rigning með köflum sunnanlands en þurrt að mestu annars staðar, svo kólnar heldur í veðri.
Hiti á morgun fer ekki yfir tíu stig og breytist lítið á laugardag en svo spáir kólnandi veðri á sunnudag. Þá bætir í vind og úrkomu á laugardag sem verður svo að slyddu við norðurströndina á sunnudagskvöld.
Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag: Suðvestan 8 til 13 m/s norðvestantil og við suðausturströndina, en annars hægari. Dálítil rigning sunnanlands og einnig á Suðvesturlandi um kvöldið, en bjart með köflum á Norður- og Austurlandi. Hiti 3 til 10 stig.
Á laugardag: Suðvestan 5til 13 og dálítil rigning sunnan- og vestantil. Bætir í vind og úrkomu seinnipartinn, en þurrt að kalla norðaustan- og austanlands. Hiti breytist lítið.
Á sunnudag: Minnkandi suðvestanátt og víða vætusamt, en úrkomulítið austanlands. Norðlæg átt og slydda við norðurströndina um kvöldið. Kólnandi veður.
Á mánudag: Norðanátt og dálítil él, en þurrt og bjart suðvestan- og vestanlands. Vægt frost, en hiti 1 til 6 stig sunnantil fram á kvöld.
Á þriðjudag: Breytileg átt og víða þurrt veður og bjart með köflum. Vægt frost fyrir norðan, en frostlaust syðst.
Á miðvikudag: Líkur á norðanátt með snjókomu fyrir norðan, en þurrt sunnanlands. Kólnar í veðri.