Síðustu vikur hafa mótmæli sem breyst hafa í óeirðir reglulega verið í fréttum. Fram kemur í umfjöllun Guardian að sérstaklega hafi verið boðað til mótmælanna nú vegna niðurskurðar í lestarsamgöngum í landinu. Fyrr í haust breyttust víðtæk mótmæli stúdentahreyfinga um landið í óeirðir sem frönsk stjórnvöld sögðu algjörlega óásættanleg en mikil skemmdarverk voru unnin í helstu borgum og bæjum landsins.
Segir í umfjöllun miðilsins að ríkisstjórn Frakklands vinni nú að því að koma umdeildum fjárlögum í gegnum þingið. Fjárlögin miði að því að koma á böndum á ríkisreksturinn þar sem opinberar skuldir nálgist nú 120 prósent af landsframleiðslu. Segja verkalýðsfélögin að niðurskurðurinn til lestarkerfisins muni fela í sér skert lífskjör fyrir starfsfólk sem muni auka á fátækt í landinu.
Einungis örfáir mánuðir eru eftir af stjórnartíð Emmanuel Macron Frakklandsforseta og segir í umfjöllun miðilsins að sú staðreynd sé enn til að auka á spennu í landinu. Forsetakosningar fara fram næsta vor. Marine Le Pen leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar fer með himinskautum í skoðanakönnunum í aðdraganda kosninganna en Le Pen laut í lægra haldi gegn Macron í síðari umferð forsetakosninga í landinu árið 2022.