Bandaríski slúðurmiðillinn TMZ greindi fyrst frá og segir í frétt þeirra að samhliða því að sækja um skilnað hafi hún lagt fram tillögu að því hvernig þau munu deila skyldum sínum sem foreldrar. Þar segir einnig að í skjölunum komi ekki fram hvernig þau ætli að deila forræði eða ástæða fyrir skilnaðinum.
Fjallað er um það í erlendum miðlum að daginn eftir að hún sótti um skilnað hafi þau bæði fagnað afmæli elstu dóttur sinnar, Noru, sem varð fimm ára í gær.
Samband Jen og Zac hefur verið í aðalhlutverki í SLOMW allar fjórar þáttaraðirnar. Þau opnuðu sig um erfiðleika í hjónabandinu í fyrstu þáttaröðinni og Jen viðurkenndi síðar að þau hefðu verið á „brothættum stað“ þegar tökur hófust og hafi síðan unnið úr vandamálum sínum í sambandsmeðferð.
Fjallað er um skilnaðinn líka í bandaríska miðlinum Us Weekly, þar segir að í apríl 2025 hafi Jen opnað sig um hjónaband sitt og Zac í einkaviðtali við Us þegar hún var að kynna aðra þáttaröð SLOMW.
„[Hjónabandið okkar er] eins og svart og hvítt á þessum tímapunkti,“ sagði hún þá. „Við segjum það hvort við annað á hverjum einasta degi. Við segjum: ef við komumst í gegnum þetta, komumst við í gegnum hvað sem er.“
Mormónaeiginkonur í Orange County
Jen mun fara með hlutverk í væntanlegri þáttaröð um mormónaeiginkonur í Orange County sem byggir á þeirri fyrstu sem gerist aðallega í Utah. Serían um eiginkonurnar í Orange County verður frumsýnd í næstu viku en þar verður fylgst með hópi kvenna eins og í SLOMW.
Jen og Zac tilkynntu í júní að þau ættu von á sínu fjórða barni. Mánuði síðar opnaði Jen sig um að hún glímdi enn á ný við fæðingarþunglyndi líkt og hefur verið fjallað um ítarlega í þáttaröðinni.
„Þunglyndið á meðgöngu kom aftur á þessari meðgöngu. Nema í þetta sinn kom það enn þyngra til baka,“ skrifaði hún á Instagram í júní.
„Það voru margir dagar á fyrsta þriðjungi meðgöngunnar þar sem hugurinn leitaði á mjög dimma staði. Það hræddi mig. Og ef þú hefur einhvern tímann upplifað þunglyndi veistu hversu einangrandi það getur verið. Bættu svo við flutningi til nýs ríkis, því að vera ólétt og reyna að standa sig fyrir börnin sín, og sumir dagar virtust óyfirstíganlegir,“ sagði Jen og vísaði þar í flutning sinn frá Utah til Kaliforníu.