Stjórnarandstaðan í Paragvæ hefur lagt fram tillögu um að víkja Santiago Pena forseta landsins úr embætti. Ástæðan er fall Ueno-bankans, stærsta banka landsins, sem hefur gert það að verkum að milljónir viðskiptavina hafa ekki aðgang að fjármunum sínum.
Seðlabanki Paragvæ tók Ueno-bankann yfir á þriðjudag. Seðlabankinn taldi það nauðsynlegt vegna skorts á lausafé í bankanum til að halda fjármálakerfinu stöðugu. Búið er að gefa út handtökuskipan á átta af helstu stjórnendum bankans, þar á meðal forstjórann Miguela Vazquez sem hefur þegar gefið sig fram við lögreglu.
Um þrjár milljónir manna eru í viðskiptum við bankann, sem er um helmingur íbúa landsins. Yfirtakan varð til þess að fólkið missti aðgang að inneignum sínum í bankanum. Seðlabankinn tók þó fram að reikningseigendur fengju allt að tíu milljónir guarani, sem er jafnvirði hátt í 200 þúsund króna, sem fyrstu greiðslu úr innistæðutryggingasjóði.
Tillaga um brottrekstur forsetans
Það kom þó ekki í veg fyrir að fólk mótmælti á götum úti í gær. Í höfuðborginni Asuncion var fjöldi fólks með miklar áhyggjur af því að hafa misst aðgang að sparifé sínu. Pena forseti hefur reynt að róa fólk með því að segja að fjármálakerfið sé traust og þar séu tryggingar til að vernda innistæðueigendur.
Pena átti lengi hlutabréf í móðurfélagi bankans en seldi þau í fyrra. Hann fór fram á afsögn Carlos Carvallo seðlabankastjóra, sem var áður bankastjóri Uneo-bankans. Carvallo samþykkti þá beiðni.
Stjórnarandstaðan í Paragvæ hefur lagt fram tillögu um brottrekstur Pena úr forsetaembættinu fyrir misferli í starfi. Tillagan verður rædd á þingi í dag. Tveir þriðju þingmanna í báðum deildum þingsins þurfa að samþykkja tillöguna til að hún verði að veruleika og flokkur Pena er með meirihluta í báðum deildum.