Sú útreið sem Trump og flokkur hans fékk í Bandaríkjunum mun hafa víðtæk áhrif langt út fyrir Bandaríkin sjálf. Trumpismi hefur rutt sér til rúms í ýmsum löndum Evrópu og einnig á Íslandi. Í kosningunum var Trump og Trumpisma gjörsamlega hafnað sem mun leiða til þess að unnt verður að stemma stigu við gáleysislegri stefnu forsetans í mörgum málum þó ætla megi að hann geti haldið áfram að framfylgja rangri stefnu næstu tvö árin en engan veginn af sama krafti og verið hefur.
Orðið á götunni: Trumpistar á Íslandi eru í áfalli eftir niðurlæginguna í Bandaríkjunum