Húsið er hannað af Arnhildi Pálmadóttur og er um að ræða svokallað einingahús þar sem grunnurinn er steyptur og síðan kom restin af einingunum erlendis frá. Gulli Byggir fylgdist með ferlinu frá upphafi en hann mætti fyrst norður 20. maí á síðasta ári.
Í síðasta þætti af Gulla Byggi var fylgst með upphafsskrefunum og hvernig til tókst að reisa útveggi hússins. Þar má meðal annars finna fjögurra tonna burðarbita til að halda þakinu uppi.
Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti en hægt er að sjá hann í heild sinni á Sýn+.
Í næstu viku verður síðan hægt að sjá húsið fullbúið.