Jólaseríurnar hjá Múrbúðinni heita nú Bjarmi, nafn sem lýsir vel hlýju birtunni sem þær færa inn í skammdegið. Þær eru jafnframt gerðar til að standast íslenskt vetrarveður ár eftir ár.
Nýtt nafn - sömu traustu seríurnar
Bjarmi er nýtt nafn en ekki ný vara. Þetta eru sömu seríurnar og hafa lýst upp íslensk heimili og fyrirtæki í meira en áratug. „Seríurnar hafa þegar sannað sig. Við vildum gefa þeim nafn sem nær utan um það sem jólaljósin gera fyrir okkur: Þau lýsa upp umhverfið og gera skammdegið hlýlegra,“ segir Svavar Þórisson, verslunarstjóri.
Alvöru útiseríur fyrir alvöru veður
Íslenskur vetur býður upp á meira en fallega logndrífu. Þess vegna segir Svavar að útlitið sé aðeins hálf sagan þegar útiseríur eru valdar. Það sem skiptir ekki minna máli er hvernig þær eru gerðar. „Þetta þurfa að vera alvöru útiseríur. Við leggjum áherslu á sterkan gúmmíkapal, höggþolnar perur og vandaðan frágang. Það skiptir öllu þegar seríurnar eiga að vera úti í roki og rigningu.“
IP65 – merkingin sem vert er að skoða
Bjarmi er með IP65-vörn og Svavar hvetur fólk til að skoða IP-merkinguna þegar það ber saman útiseríur. Hún segir til um hversu vel seríurnar eru varðar gegn ryki og vatni:
• IP44: Vörn gegn föstum aðskotahlutum sem eru stærri en einn millimetri og gegn vatnsslettum.
• IP65: Rykþétt vörn og vörn gegn vatnsbunum.
„Byrjaðu á IP-merkingunni og skoðaðu svo seríuna sjálfa. Bjarmi IP65 er með þykkum og sterkum gúmmíkapli og höggþolnum perum. Það eru einmitt eiginleikarnir sem skipta máli fyrir útinotkun hér á landi,“ segir Svavar. „Berðu saman gæðin en ekki bara verðið. Þá sérð þú að Múrbúðin er með mjög hagstætt verð á vönduðum jólaseríum. Sem dæmi kostar 100 ljósa IP65-sería aðeins 4.924 kr. og 200 ljósa IP65 sería 6.995 kr.,“ segir Svavar.
Uppi allt árið? Það er hægt
Góð sería nýtur sín best þegar vel er gengið frá henni. „Seríurnar henta vel í tré, á þakskegg og á veggi, þar sem vatn getur runnið af þeim. Forðist staði niðri við jörð þar sem vatn safnast fyrir. Það á líka við um samtengin,“ segir Svavar. „Það er hægt að hafa IP65-seríurnar uppi allt árið ef vel er gengið frá festingum og samtengingum. Þá getur fólk haft ljósin áfram uppi og sleppt því að setja allt upp aftur á hverju hausti.“
Nokkrar mínútur aukalega í uppsetninguna núna borga sig margfalt þegar desember gengur í garð og annað fer að kalla á athyglina.
Allt sem þarf fyrir uppsetninguna
Hjá Múrbúðinni færðu ekki aðeins seríurnar heldur líka samtengi, krumpuhólka og hlífðarbox fyrir jólaseríur. Þannig geturðu sett lýsinguna upp nákvæmlega eins og þú vilt, hvort sem þú vilt lýsa upp svalahandriðið eða allt húsið.
„Það þarf að huga að tengingunum alveg eins og seríunum sjálfum. Best er að ganga þannig frá tengingunum að þær liggi ekki í vatni,“ segir Svavar.
Gott ráð: Skoðaðu aðstæður og ákveddu hvar ljósin eiga að vera áður en hafist er handa. Þá veistu hvaða seríur og tengi þarf.
Vönduð jólalýsing þarf ekki að kosta mikið
Hagstætt verð á jólaseríum hefur lengi verið aðalsmerki Múrbúðarinnar og það breytist ekki með nýju nafni. Markmiðið er að fólk geti valið vandaðar útiseríur án þess að jólalýsingin verði stór útgjaldaliður.
„Við höfum árum saman lagt áherslu á hagstætt verð á jólaseríum og það breytist ekki þótt nafnið geri það. Við hvetjum fólk til að bera saman IP-merkinguna, kapalinn og verðmiðann. Skammdegið kemur hvort sem er. Það er óneitanlega notalegra að taka á móti því með jólaljósin tendruð.“
Bjarmi-jólaseríurnar fást í verslunum Múrbúðarinnar og í vefversluninni á murbudin.is.