Veðurfræðingur Vegagerðarinnar bendir á að búast megi við vindhviðum um og yfir 25 m/s í suðvestlægri átt á Vestfjörðum, Norðvesturlandi og Tröllaskaga eftir hádegi. Þetta getur skapað varhugaverð skilyrði fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
„Lægir í kvöld, en ekki fyrr en eftir miðnætti á Tröllaskaganum,“ segir í tilkynningu.