„Við þekkjum ekki alltaf umfangið en okkur er sagt að á hverjum tíma séu tugir tilboða í Reykjavík og úti á landi um vændi. Fólk er flutt til landsins til þess að stunda vændi, það sé mjög skipulagt. Ég hef heyrt að Reykjavík sé að verða eins og Bangkok norðursins, það er mjög auðvelt að nálgast vændi,“ segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis og þingmaður Samfylkingarinnar.
Forseti Alþingis ómyrk í máli: „Reykjavík sé að verða eins og Bangkok norðursins“