Sprengjuhótanir hafa borist gegn fjölda farþegaflugvéla í millilandaflugi í dag. Vélarnar hafa verið á flugi víða í Evrópu.
Vél Aer Lingus sem var á leið frá Dublin til Rómar. Þeirri vél var beint að herflugvelli í Evreux-herstöðinni í Norður-Frakklandi. Flug Wizz Air sem var á leið frá Mílanó til Varsjár var lent í Vín eftir að hótun barst. Þá barst einnig hótun vegna vélar Finnair sem var á leið frá Helsinki til Rómar, og annarrar á leið frá Helsinki til Vínar. Báðar vélarnar fóru alla leið. Flugvél LOT frá Varsjá til Brussel fór einnig alla leið, en öryggisskoðun var gerð við lendingu.
Þá greina yfirvöld í Belgíu frá því að þremur flugvélum á leið þangað hafi verið nauðlent af sömu ástæðu. Tékkneska lögreglan staðfesti svo í dag að hótanir hafi borist um sprengju í fjórum vélum á leiðinni til höfuðborgarinnar Prag. Verið sé að undirbúa lendingu vélanna og ítarlega skoðun fari fram þegar þær lenda. Að auki hafa þrjár vélar sem eru á leið til Búlgaríu einnig orðið fyrir hótunum. Nýjar fréttir eru stöðugt að berast.
Í engu þessara tilvika hafa fundist neinar sprengjur. Það gerðist heldur ekki á þriðjudaginn þegar hótun barst gegn sjö farþegavélum í millilandaflugi.
Fréttin hefur verið uppfærð.