Helmingur blaðamanna á litlum norskum fréttamiðli er á lista yfir eftirlýsta einstaklinga í Rússlandi og nokkrir þeirra hafa verið dæmdir í margra ára fangelsi. Þrátt fyrir hótanir og ofsóknir rússneskra stjórnvalda neita blaðamennirnir að láta þagga niður í sér.Breska blaðið The Guardian fjallar um starfsemi Barents Observer, sjálfstæðs fréttamiðils í bænum Kirkenes í Norður-Noregi, skammt frá landamærum Rússlands. Þar starfa meðal annars rússneskir blaðamenn sem hafa flúið heimaland sitt vegna ofsókna stjórnvalda.
Ótrúleg staða á norskri fréttastofu – Helmingur blaðamannanna eftirlýstur í Rússlandi