Þetta er meðal þeirra 113 mála sem voru bókuð í kerfum lögreglu frá því klukkan 17:00 í gær þar til klukkan fimm í morgun en í það minnsta þrír gistu í fangageymslu lögreglu fram undir morgun.
Þá var lögregla við almennt yfirlit í Háaleitis- og Bústaðahverfi þegar hún tók eftir bifreið sem var ekið glannalega. Ökumaður ók ógætilega með þeim afleiðingum að hjólbarðar bifreiðarinnar misstu veggrip á bílastæði í hverfinu. Var það mat lögreglu að ökumaðurinn væri að keyra með slíkum hætti af ásettu ráði og var hann því sektaður.
Á varðsvæði lögreglustöðvar 1, sem sinnir verkefnum í Vesturbæ, Miðborg, Hlíðum, Laugardal, Háaleiti og á Seltjarnarnesi, var tilkynnt um þjófnað úr verslun. Málið er í rannsókn er fram kemur í dagbók lögreglunnar. Aðili var til ama í verslunarmiðstöð á sama varðsvæði en honum var vísað á brott af lögreglu.
Að minnsta kosti fjórir voru stöðvaðir við almennt eftirlit og þar af reyndust þrír aka undir áhrifum og voru tveir þeirra handteknir og færðir á lögreglustöð. Einn ökumaður var sektaður fyrir að aka bifreið án gildra ökuréttinda. Þessi mál áttu sér stað hvert í sínu umdæmi en þau eru alls fjögur á höfuðborgarsvæðinu.