„Koma, krakkar, skreyta hraðar,“ æpti ég svo að piparkökuglassúr slettist upp um eldhúsveggina. „Hvers vegna gengur ykkur ekkert að drekka kakóið?“
„Það er svo heitt,“ kveinaði sá yngsti.
„Blástu þá bara á það.“
Heimsóknin endaði í tárum
Ég hef lært eitt um ævina: Jólin láta ekki bíða eftir sér. Í ár ætlaði ég ekki að leyfa þeim að læðast aftan að mér heldur hugðist ég hafa þau undir: Ég skyldi ljúka þeim af snemma.
Eftir að hafa skreytt piparkökurnar rukum við með eymsli í tungunni niður í miðbæ Lundúna til að skoða hin frægu jólaljós á Oxfordstræti. Það var að vísu ekki búið að kveikja á þeim en sjónin nægði til að strika athöfnina út af listanum.
Næsta stopp var jóladeild stórverslunarinnar John Lewis. Heimsóknin endaði í tárum þegar þær fimm mínútur sem börnunum voru skammtaðar til að velja sér fyndna jólakúlu á tréð nægðu ekki. Við því var þó ekkert að gera því á jólum þarf einnig að sinna Jesú og við áttum bókaða miða á eftirmiðdagssýningu söngleiksins Jesus Christ Superstar.
Fleiri tár féllu þegar heim var komið og ég hugðist tékka af listanum hina árlegu hefð: jólamyndina. Sjálf var ég sex ára þegar jólamyndin Gremlins kom í bíó. Á tímum vók snjókorna virðast sex ára börn hins vegar ekki lengur þola bíómyndir bannaðar innan tólf.
Steiking laufabrauðs gerð valfrjáls
Í dag eru fimmtíu dagar til jóla.
Síðustu ár glitti í von um að ná mætti böndum á öfgum jólanna. Það þurfti ekki lengur að baka tíu sortir. Steiking laufabrauðs var gerð valfrjáls. Rauðkálið varð ekki að vera heimagert. Ekki heldur jólakransinn. Það voru ekki lengur helgispjöll að bíða með þrif á skápum og gardínum fram í janúar. Piparkökuhús urðu æ sjaldséðari.
En ekki leið á löngu uns svigrúmið sem hafði myndast fylltist af nýjum jólahefðum.
„Cosplay“-spilarar sem leika fólkið í Stjörnulífinu
Upplifunin er hin nýja smákaka. Jólin ganga ekki lengur út á að neyta heldur njóta. Náðarstundum er troðið ofan í kokið á okkur eins og gæs sem fituð er fyrir jólakæfu.
Í skóla barnanna eru jólaskemmtanir, jólaleikrit, jólatónleikar, jólaföndur, jólabakstur, og jólapeysudagar.
Uppstríluð og æpandi hress, eins og „cosplay“-þátttakendur sem látast vera flotta fólkið í Stjörnulífinu á Vísi, mætum við á jólahlaðborð með vinnufélögunum, jólatónleika með vinkonunum og áramóta uppistand með vinunum.
Minningarnar eru varðveittar á Instagram þar sem upplifun er ekki aðeins athöfn heldur stöðutákn.
Þarf allt að gerast í desember?
Hér áður fyrr voru jólaverkin listi jafnlangur og umferðarstíflan við bílastæðahús Kringlunnar. Listinn er enn jafnlangur. Verkefnin eru önnur, en engu minna lýjandi.
Einu sinni spurðum við: Þarf endilega að þrífa alla skápa í desember?
Nú er vert að spyrja: Þarf allt að gerast í desember? Geta söngvarar ekki sungið í janúar? Geta grínistar ekki sagt brandara í febrúar? Er ekki hægt að fara á hlaðborð í mars? Mega köku- og búbbluboð kunningjakonu, sem maður á ekki annað sameiginlegt með en gagnkvæma andúð síðan í menntó, ekki fara fram í apríl?
Tilraunin heppnaðist
Tilraun mín til að ljúka jólunum af í október svínvirkaði. Börnin hafa læknast af allri jólatilhlökkun.
Beinagrindin situr enn fyrir utan hús nágrannans og les Schopenhauer.
Sennilega verður hún sú eina í götunni sem mun upplifa aðventuna með þeim hætti sem við þráum flest.