
Fjórir ökumenn reyndust vímaðir og voru sviptir ökuréttindum við eftirlit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun. Einn þeirra ók gegn einstefnu. Allir fjórir voru færðir á lögreglustöð í hefðbundið ferli og voru lausir að því loknu.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Alls voru 113 mál bókuð á tímabilinu og þrír gistu fangageymslu þegar dagbókin var rituð. Lögreglan tekur fram að listinn sé ekki tæmandi.
Þrír menn í annarlegu ástandi handteknir fyrir rán í Grafarvogi
Ók gegn einstefnu og reyndist vímaður
Tveir ökumannanna voru stöðvaðir á svæði Lögreglustöðvar 3, sem nær yfir Kópavog og Breiðholt. Lögregla veitti öðrum þeirra athygli þegar hann ók gegn einstefnu. Hinn var stöðvaður við almennt eftirlit. Annar þeirra var handtekinn.
Einn ökumaður reyndist vímaður og sviptur ökuréttindum á svæði Lögreglustöðvar 1 og annar á svæði Lögreglustöðvar 2. Báðir voru stöðvaðir við almennt eftirlit. Sá síðarnefndi var handtekinn.
Sektaður fyrir ógætilegan akstur í hverfi 108
Lögregla við almennt eftirlit veitti því athygli er ökumaður ók bifreið sinni ógætilega á bifreiðarstæði í hverfi 108 með þeim afleiðingum að hjólbarðar bifreiðarinnar misstu veggrip. Að mati lögreglu gerði ökumaðurinn þetta af ásettu ráði og var hann sektaður.
Á svæði Lögreglustöðvar 4, sem nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ, var ökumaður sektaður fyrir að aka bifreið án gildra ökuréttinda.
Þjófnaður úr verslun í rannsókn
Tilkynnt var um þjófnað úr verslun á svæði Lögreglustöðvar 1 og er málið í rannsókn. Þá var aðila sem var til ama í verslunarmiðstöð vísað á brott.