Seint í jólabókaflóði ársins 2005 kom út bókin Thorsararnir, eftir Guðmund Magnússon. Þar rakti höfundurinn sögu athafnamannsins Thors Jensen, barna hans og barnabarna. Fjölskyldu sem mikið fór fyrir í íslensku samfélagi fram eftir allri síðustu öld. Frumkvöðlar og eigendur fyrstu stórfyrirtækja á Íslandi, bæði í sjávarútvegi og landbúnaði.
Bókina byggði sagnfræðingurinn og höfundur hennar, Guðmundur Magnússon, á rannsóknarvinnu sinni á umsvifum ættarinnar. Þar munaði mestu um aðgegni Guðmundar að umfangsmiklu, áður óséðu skjalasafni fjölskyldunnar, sem vörpuðu nýju ljósi á viðskipti, persónuleg málefni og eldfim pólitísk mál.
Nú, rúmum tuttugu árum síðar kemur bókin aftur út, hjá öðru forlagi. Nú er það bókaútgáfan Ugla útgáfa sem gefur hana út. Ástæðan fyrir endurútgáfunni er þó ekki eingöngu sú að bókina hafi vantað í hillur bókaverslana í fjölda ára. Hún er ekki síst sú hvernig staðið var að útgáfu hennar í upphafi, á vegum þáverandi útgefanda hennar, Eddu-Útgáfu.
„Þegar Thorsararnir komu fyrst í búðir þá var það ekki sú útgáfa nákvæmlega sem ég hafði búið til prentunar,“ sagði Guðmundur Magnússon, höfundur bókarinnar og sagnfræðingur, í þættinum Þetta Helst.
„Upplaginu sem hafði verið prentað var fargað og gerðar breytingar á textanum sem töfðu útgáfuna í einhverjar vikur eða svo.“
Bókin, endurprentuð, kom því seint í búðir, eða í desemberbyrjun 2005. Það var hins vegar ekki bókahandritið sem Guðmundur hafði upphaflega skilað til birtingar. Í hana vantaði nú fjórar blaðsíður og eina ljósmynd. Síðurnar og ljósmyndin myndin innihéldu umfjöllun um hjónaband Þóru Hallgrímsson, eins af afkomendum Thors Jensen, á sjötta áratug síðustu aldar.
Páll Bragi Kristjónsson stýrði forlaginu Eddu á þessum tíma en eigandi þess var hins vegar seinni eiginmaður Þóru, Björgólfur Guðmundsson. Fjölskyldu hans virtist mikið í mun að ekki yrði fjallað um þennan hluta í lífi Þóru. Svo mikið að forlagið ákvað að hún kæmi ekki út, með umfjöllun um þetta efni.
„Og ég skil alveg viðkvæmni hennar fyrir umfjöllun um þetta og maður skilur alveg þessar erfiðu tilfinningar sem vöknuðu,“ segir Guðmundur en bendir á að fræðimenn láti það ekki duga eitt og sér, þegar þeir telji að mál af þessu tagi þurfi opinbera umfjöllun.
Guðmundur segist jafa verið meðvitaður um að málið væri viðkvæmt og við vinnslu bókarinnar hafi hann hitt og tekið viðtal við Þóru, sem hafi ekki viljað ræða þessi mál.
„En mér fannst það ekki loka málinu heldur kannaði ég það bara eftir öðrum heimildum, hvernig á þessu hafði staðið, og skrifaði það.“
Gerði ráðstafanir
Til öryggis hafi hann þó sent þann hluta sem fjallaði um þessi mál til yfirlestrar í forlaginu og beðið um að efnið væri kannað, vitandi um náin tengsl á milli framkvæmdastjórans og eigenda félagsins. Það hafi ekki orðið tilefni neinna viðbragða eða athugasemda af hálfu forlagsins.
„Fyrir einhverja handvömm, eða ég hef aldrei fengið alveg skýringar á því, þá var þetta ekki lesið yfir og fór ekki í athugun. En ég stóð í þeirri meiningu að þetta væri sem sagt yfirlesið og samþykkt.“
Það hafi ekki komið í ljós fyrr daginn sem bókin kom út og Guðmundur fékk hana í hendur, sem kom í ljós að þessi umfjöllun hafi hvorki verið lesin yfir né heldur væri hún samþykkt og ljóst að útgáfan myndi ekki gefa hana út með þessu viðkvæma efni.
Engin bomba
Allt stefndi því í það að sögn Guðmundar að bókin kæmi ekkert út. Ekkert meira yrði um hana. Nema efnið yrði fjarlægt og bókin prentuð upp á nýtt.
„Ég vildi forðast það og ég tók vel í það að þessar síður færu úr bókinni og ég taldi þær ekki skipta máli. Bókin kom út með þessari breytingu,“ rifjar Guðmundur upp.
Hann segir að eftir að upp komst um málið hafi margir verið sannfærðir um það að þarna hefði einhverjum miklum leyndardómi verið fargað og þaggað niður.
„Og mér fannst þess vegna, og hefur lengi fundist, að það væri nauðsynlegt að bókin, eins og hún var upphaflega, kæmi öll fyrir sjónir lesenda.“
Það var vitaskuld ekki gert opinbert við útgáfuna að Guðmundi hefði verið gert að fjarlægja þessa umfjöllun úr bókinni. Hann bendir á að umfjöllunin hafi hvorki innihaldið nýjar né eldfimar upplýsingar um þetta tiltekna efni, heldur samantekt þess sem heita máttu almælt tíðindi; aðgengilegt öllum þeim sem höfðu aðgang að nettengdri tölvu.
Rockwell út – Björgólfar inn
Í tengslum við endurútgáfuna nú koma í upplýsingar um enn frekari afskipti Eddu útgáfu af efnistökum Thorsarabókarinnar. Að Guðmundur Magnússon hafði verið látinn bæta við kafla í bókina, á sama tíma og hinum kaflanum var kippt út. Sú viðbót var líka gerð að beiðni forsvarsmanna Eddu útgáfu.
„Reyndar var bætt við efni að ósk forlagsins sem ég hef tekið út í seinni útgáfunni af því að mér finnst það ekki eiga við lengur.“
Þegar Guðmundur er spurður nánar út í þetta efni, kemur í ljós að efnistök þessarar viðbótar tengdust líka eigendum Eddu-útgáfu. Þó með allt öðrum hætti.
„Það var sem sagt nefnt við mig að það hefði vantað meiri tengingu við þá menn sem margir litu svo á sem arftaka hinna gömlu Thorsara, þá feðga Björgólf Guðmundsson og Björgólf Thor.“
Hrun veldis þeirra feðga í Hruninu, gjaldþrot Björgólfs eldri og brottför þess yngri af sviði íslenska viðskiptalífsins, auk þeirrar staðreyndar að Guðmundur ætlaði sér aldrei að skrifa sérstakan kafla um þá feðga, er ástæða þess að hann er ekki birtur í nýju bókinni.
Og svo hrundi þetta allt í hruninu og þeir feðgar fóru af sviðinu í íslensku viðskiptalífi og Björgólfur Thor til útlanda.
„Enda hafði ég ekki séð hana sem part af bókinni upphaflega.Þannig að ég hef tekið hana út úr bókinni. Hún var ekki í frumútgáfunni sem var prentuð,“ segir Guðmundur.
Útgefandinn harðneitaði
Þrátt fyrir að bókinni hafi verið fargað með leynd haustið 2005 komust fjölmiðlar á snoðir um málið og týnda kaflann. Spurðu hvers vegna bók sem innihélt óþægilega umfjöllun fyrir eigendur bókaútgáfu hafði verið keyrð á haugana og ný, þeim betur þóknanleg, prentuð.
Forstjóri Eddu útgáfu þvertók fyrir það í fréttum að Björgólfur Guðmundsson hefði farið fram á bókinni yrði fargað. Hann gaf þá skýringu að handritið sem hafi verið komið á bók hafi ekki verið það sem „menn voru ásáttir um að ætti að vera hið endanlega.“ Ekki var annað honum að heyra en að mistökin og ákvörðun lægju hjá höfundinum.
„Þannig að við stóðum frammi fyrir þeirri ákvörðun, sem er náttúrulega kostnaðarleg líka, að þessar tilteknu bækur voru ónýtar og þá var ekkert um annað að ræða heldur en að farga þeim.“
Guðmundur kaus sjálfur að tjá sig ekki við fjölmiðla um málið á þeim tíma. Hann fór þó í viðtöl en óskaði þess að svara ekki spurningum um hvernig staðið hefði á því að bók hans hafi verið fargað.
„Ég lít á samskipti milli mín og útgáfunnar sem trúnaðarmál,“ sagði Guðmundur til að mynda í einu fréttaviðtali árið 2005.
Efni týnda kaflans var fjölmiðlum tilefni til að rifja sjálfir upp það sem ekki hafði mátt birta í bókinni. DV gerði það til að mynda í opnugrein. Þar var ljósi varpað á hver hann hefði verið, þessi fyrrverandi eiginmaður Þóru, og hvers vegna umfjöllun um hann gæti hafa verið svo viðkvæm.
Sagði Hitler Krists jafna
George Rockwell var liðsforingi í bandaríska hernum þegar hann kom hingað til lands árið 1953. Hann og Þóra Hallgrímsson kynntust í sendiráðsboði og felldu brátt hugi saman.Ekki löngu síðar giftu þau sig og fluttu til Bandaríkjanna þar sem þau bjuggu árin og eignuðust þrjú börn. Árið 1958, eftir fimm ára hjónaband, fékk Þóra aðstoð við að komast heim til Íslands með börn sín og skilja við eiginmanninn.
Um þetta leyti hafði Rockwell lagt grunn að stofnun nasistaflokks Bandaríkjanna, sem hann stýrði næsta áratuginn og notaði til þess að breiða út gyðingahatur sitt og kynþáttafordóma.
Frásögnum þeirra sem til þekktu og vitnað er til í bók Guðmundar ber saman um að ekkert bendi til þess að Þóra hafi vitað af eða stutt þær skoðanir sem Rockwell varð frægur að endemum fyrir að boða við hvert tækifæri næsta áratuginn eftir skilnað hans og Þóru.
Í sjónvarpsviðtali í þætti Kanadíska sjónvarpsins árið 1965 sagðist hann meðal annars vera nasisti, nánar tiltekið rasisti sem tryði á varðveislu hvíta kynstofnsins, eins og hann orðaði það. Við sama tilefni afneitaði hann með öllu helförinni gegn gyðingum og fór ekki duldt með aðdáun sína á Adolf Hitler, sem hann taldi raunar jafnast á við Krist sjálfan.
Stjórnmálaflokkur Rockwells varð aldrei annað en tiltölulega fámennur hópur öfgasinna. Ítrekaðar tilraunir hans til að ná árangri í kosningum fóru út um þúfur. Nafn hans varð engu að síður þekkt víða um heim, enda voru fáir sem komu opinberlega fram undir fána nasista á þessum árum.
Bandaríski rithöfundurinn Alex Haley tók árið 1966 viðtal við Rockwell í höfuðstöðvum nasistaflokksins í Arlington í Virginíu. Viðtalið birtist svo sama ár í bandaríska tímaritinu Playboy.
Haley er einna þekktastur fyrir að hafa skrásett sjálfsævisögu Malcolms X, í samvinnu við þann síðarnefnda. Hann skapaði sér ekki síður nafn með ritun skáldsögunnar Roots, eða Rætur, sem síðar varð að samnefndum sjónvarpsþáttum um sögu þeldökkra Bandaríkjamanna og voru sýndir hér á landi við gríðarlegar vinsældir á áttunda áratugnum.
Tveir stórleikarar túlkuðu þá augnablikin þegar Haley gekk inn í höfuðstöðvar nasistaflokksins, í einbýlishúsi í úthverfi Arlington í Virginíu til fundar við Rockwell. James Earl Jones í hlutverki blaðamannsins Haley og Marlon Brando í hlutverki Rockwell.
Brando kom aðeins fram í þessar átta mínútur í þáttaröðinni. Frammistaða hans þótti þó slík að hann hlaut Emmy-verðlaun árið 1979. Hann var sagður sýna stórkostlegan leik og túlka illmennið á ískaldan en um leið hógværan hátt.
Kálfurinn ofaldi
Árið 1967 mætti svo Rockwell örlögum sínum. Hann féll fyrir hendi fyrrverandi liðsmanns nasistaflokksins. Sá hét John Patler og hafði tekið sér eftirnafn til heiðurs Hitler. Honum hafði verið vísað úr flokknum skömmu áður.
Patler sat fyrir Rockwell á bílastæði lítillar verslunarmiðstöðvar í Arlington. Rockwell hafði þar verið að sinna þvotti í efnalaug og var að sögn á leið heim eftir klór sem hann hafði gleymt en þurfti til að hvítta skyrtur sínar.
Rockwell komst þó aldrei lengra en út í bíl á leið sinni eftir klórnum. Patler skaut hann þar. Rockwell lést samstundis af sárum sínum. Hann var 49 ára.
Dauði hans vakti mikla athygli og varð jafnvel forsíðuefni blaða mun víðar en í Bandaríkjunum. Svo var einnig hér á landi.
Eins og Guðmundur Magnússon bendir á var umfjöllun íslenskra fjölmiðla um morðið á Rockwell nokkuð sérstök.
„En það merkilega er að aldrei í allri þessari umfjöllun íslensku fjölmiðlanna var vikið að því að hann hefði haft þessi tengsl við Ísland, verið giftur íslenskri konu og látið að sér kveða hér í opinberri umræðu á Íslandi.“
Atti saman Mogganum og Tímanum
Nafn Rockwell hafði sannarlega komið fyrir í opinberri umræðu. Árið 1957 birti Morgunblaðið heilsíðugrein á leiðaraopnu sinni eftir Rockwell. Greinin hafði fyrst birst í mánaðarritinu American Mercury, sem Rockwell skrifaði mikið í á þeim tíma. American Mercury hafði um áratugaskeið þótt nokkuð virt og vant að virðingu sinni en var þarna farið að birta sífellt öfgafyllri skrif, sem einkenndust af grófu gyðingahatri.
Meðal efnis í greininni sem birt var í Morgunblaðinu voru fullyrðingar Rockwell um það hvernig kommúnisminn hefði svo gott sem gert Íslendinga að aumingjum og það hvernig varnarliðið bandaríska væri fullt af „óamerískum“ stjórnarerindrekum, og sló þar með kunnuglegan tón Josephs McCarthy, sem á þessum tíma fór með himinskautum í leit sinni að kommúnistum í Bandaríkjunum.
Birting Morgunblaðsins á greininni olli reyndar fordæmingu og varð tilefni nokkurs hnútukasts á milli Tímans og Morgunblaðsins, næstu daga og vikur.
Þegar Rockwell lést, var þó hvorki minnst á þessa tengingu hans eða fyrrum hjónaband hans og Þóru Hallgrímsson, sem verið til umfjöllunar í blöðunum þegar þau gengu í það heilaga 1953. Auk þess hefur verið bent á að allir þeir sem vildu vita, vissu af því að með hjálp frænda sinna af Thorsara-ætt, hafði Þóra komist heim frá Bandaríkjunum með börn sín, eftir það sem lýst hefur verið sem nöturlegum aðstæðum þeirra þar, á meðan hún bjó enn með Rockwell.
„En svona er nú okkar þjóðfélag smátt, sko, að það er viðkvæmt fyrir svona málum.“
Upphafið að endalokum Eddu?
Þótt Björgólfur Guðmundsson og Páll Bragi Kristjónsson hefðu í fyrstu þvertekið fyrir að umfjöllunin um George Lincoln Rockwell hefði verið ástæða þess að bók Guðmundar var fargað árið 2005, áttu þeir báðir eftir að gangast við því að það hefði einmitt verið ástæðan.
Björgólfur var sagður hafa reiðst Páli Braga fyrir að málið skyldi fyrst koma í ljós þegar búið var að prenta bókina, en Páll Bragi ekki brugðist við fyrr en þá.
Þeir höfðu verið vinir í áratugi þegar málið kom upp. Þeir höfðu meðal annars staðið í ströngu sem sakborningar í Hafskipsmálinu, Páll Bragi hafandi verið fjármálastjóri Hafskipa og Björgólfur forstjóri.
Uppljóstrunin um bókaförgunina og eftirmál hennar urðu hins vegar til þess að upp úr vináttu þeirra slitnaði.Páll Bragi lét svonokkuð skyndilega af störfum sem forstjóri Eddu útgáfu rúmu hálfu ári eftir Thorsarabókar-skandalinn. Björgólfur hóf stuttu síðar að reyna að selja bókaútgáfuna, sem tókst að lokum árið 2007.
„Já, já, ég held að það sé alveg rétt. Ég þykist svo vita að það hafi gróið um heilt á milli þeirra og ég er mjög ánægður með það. Það var einn þáttur þessa máls sem mér þótti leiður, sko, að vera svona óbeinn þátttakandi eða valdur af þessu, því að þeir voru vinir um áratuga skeið og náðu saman aftur, sem var mjög gott. En þetta olli ýmsum erfiðleikum í forlaginu og hafði ýmis eftirmál sem ég er kannski ekki alveg tilbúinn að tala um, en skipta í sjálfu sér ekki máli,“ sagði Guðmundur Magnússon sagnfræðingur í samtali við Þetta Helst.